Kampakátir Blikar í Vrnjacka Banja.

Þriðja umferð fór fram í dag á EM taflfélaga í Vrnjacka Banja í Serbíu. Íslensku liðin Víkingaklúbburinn og Breiðablik  fengu bæði erfiða andstæðinga og svo einkennilega vildi til að allir fyrsta borðsmenn mættu ísraelskum skákmanni, líka Margeir Pétursson sem teflir með Gambit Booevoie frá Lúxemborg.

Breiðablik mætti ógnarsterki sveit Rishon Le Zion frá Ísrael. Sveitin skartar sjálfum Boris Gelfand á efsta borði og fyrrum 2700 stiga skákmanni á 2. borði, Rodhstein.

Ísraelska sveitin vann stórsigur en Vignir Vatnar virðist ætla að verða gott akkeri fyrir sveitina á efsta borði. Hann hleypti taflinu aldrei upp og gerði öruggt jafntefli gegn Gelfand á efsta borði.

Snemma í viðureigninni var þó ljóst í hvað stefndi. Bárður lenti í stórsókn Sokolovsky þar sem kóngsvængur hvíts var klaufalegur.

Birkir Ísak fékk líklega besta sénsinn hjá Breiðablik. Hann tefldi mjög fína skák gegn Nimrod, nánast módelskák í þessum strúktúr og fékk blússandi sóknarstöðu.

27.Bh5! hefði verið mjög vænlegur hér…þar að auki átti Birkir góðan möguleika í 23. leik með drottningu til h4. Þess í stað missti Birkir aðeins þráðinn og fann ekki leið í gegnum svörtu stöðuna þrátt fyrir vænlega stöðu.

Víkingaklúbburinn mætti sveit Perfect frá Moldavíu. Viðureignin var ekki í beinni en Jóhann lagði Ilia Smirin að velli auk þess sem Símon náði góðum úrslitum. Aðrar viðureignir töpuðust og verða Víkingar að fá meira út úr hvítu mönnunum!

Margeir Pétursson mætti sterkum ísraelskum alþjóðlegum meistara með tæp 2500 elóstig, Gorodetsky og lagði hann að velli. Skorið á efstu borðum gegn ísraelskum skákmönnum því ansi gott!

Blikar fá næst svart gegn HSK Lister Turm, þéttri þýskri sveit sem er þó aðeins neðar í styrkleikaröð (43) en Blikar (38). Á meðan mæta Víkingar (51) Sussex Martlets (48) frá Englandi.

Umferðir hefjast að jafnaði kl. 13:15.

- Auglýsing -