Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson (2452), og alþjóðlegu meistararnir Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2384) og Dagur Ragnarsson (2346) sitja allir þessa dagana að tafli í Mallorca á Spáni. Helgi teflir í GM-flokki en hinir tveir í IM-flokki. Mótið nefnist Colonia Sant Jordi og teflt í lokuðum flokkum.

Í gær fór fram fjórða umferð í GM flokki og þriðja umferð í IM flokki. Íslendingarnir áttu góðan dag og 2,5 vinningur af 3 komu í hús.

GM-flokkur

Helgi hafði byrjað brösulega í fyrstu þremur umferðunum en rétti úr kútnum í 4. umferð með góðum sigri. Helgi hafði svart gegn FIDE-meistaranum Bennet Hagner (2311). Helgi beitti Pirc-vörn eins og svo oft áður og komst vel frá sínu. Lykilaugnablikið kom í miðtaflinu.

23.g4? lagði of mikið á hvítu stöðuna. Veikir riddarar hvíts úti á kanti og veiking peðastöðunnar reyndist Þjóðverjanum ofaukið og Helgi tók yfir frá þessum tímapunkti.

Helgi lyftir sér í fimmtíu prósentin eftir þessi úrslit og hefur 2 vinninga eftir 4 umferðir.

IM-flokkur

Þriðja umferð fór fram í IM flokknum sem hófst degi á eftir GM flokknum af einhverjum ástæðum.

Aleksandr hafði 1,5 vinning og mætti pólskum skákmanni Andrzej Krzywda (2192), þeim sama og Dagur lagði með svörtu í fyrstu umferð. Upp kom skoskur leikur, afbrigði sem Carlsen og Svidler eiga skákir í. Nokkuð gamalt afbrigði sem að ritstjóri telur afgreitt sem nokkuð dautt. Fór enda svo að miðtaflið og endataflið hélst nokkurn veginn í jafntefli alveg þar til Aleksandr lék illa af sér og sá pólski var manni yfir.

Jafntefli varð þó niðurstaðan eftir að sá pólski missti af nákvæmustu leiðinni og slapp Aleksandr því með skrekkinn.

Dagur Ragnarsson fer vel af stað og náði sér í sigur í þriðju umferðinni. Spænskur andstæðingur Dags hafði ofurtrú á ágæti eigin sóknatilburða á kóngsvæng en Dagur drap það í fæðingu með skiptamunsfórn sem færði Degi of mörg peð í heimamund. Eftirleikurinn varð nokkuð auðveldur.

Aleksandr hefur því 2 vinninga ef 3 en Dagur í banastuði með 2,5 vinning úr skákunum 3.

Taflmennska heldur áfram í dag í báðum flokkum, ein skák tefld á dag.

- Auglýsing -