Kampakátir Blikar í Vrnjacka Banja.

EM taflfélaga heldur áfram í dag í Vrnjacka Banja í Serbíu þegar 3. umferð fer fram. Tvö íslensk lið taka þátt, Víkingaklúbburinn og Breiðablik en auk þess tefla þeir Margeir Pétursson og Óskar Bjarnason með Gambit Boonevoie frá Lúxemborg.

Breiðablik mætir sterkri ísraelskri sveit þar sem goðsögnin Boris Gelfand (2658) teflir á fyrsta borði gegn okkar manni, Vigni Vatnari Stefánssyni (2541). Viðureign Breiðabliks verður í beinni en því miður ekki hinar íslensku viðureignirnar.

Víkingaklúbburinn fær fjölþjóðlega moldóvska sveit. Jóhann Hjartarson (2474) teflir við Ísraelmanninn kunna Ilia Smirin (2563). Gunnar Freyr Rúnarsson kemur aftur inn í liðið fyrir Sigurð Ingason.

Svo má ekki gleyma Margeiri Péturssyni (2405) og félögum í Gambit Bonnevoie. Þeir mæta annari ísraelskri sveit og þótt ótrúlegt sé tefla allir þrír íslensku fyrsta borð mennirnir við Ísraelmenn! Óskar Bjarnason (2115) er kominn aftur inn í liðið en hann var tekinn út eftir tap gegn Ivan Sokolov í fyrstu umferð.

Umferðir hefjast að jafnaði kl. 13:15. Vakin er athygli á lýsingum ECU TV.  Gestir og gangandi mæta í stúdíóið og gær mættu meðal annars Anand, Gukesh og Ivanchuk.

- Auglýsing -