Íslandsmeistari Helgi Áss með gripi góða eftir verðskuldaðan sigur á Skákþingi Íslands 2024. — Ljósmynd/SÍ

Stórmeistarinn Helgi Áss Grétarsson (2452) hefur farið mikinn í undanförnum umferðum á alþjóðlegu móti á Spáni, Colonia Sant Jordi þar sem teflt er í lokuðum flokkum. Helgi teflir í stórmeistaraflokki en í flokki alþjóðlegra meistara tefla þeir Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2384) og Dagur Ragnarsson (2346).

Sex umferðum er lokið í GM-flokki en fimm umferðir í IM-flokki

GM-flokkur

Helgi kvittaði fyrir erfiða byrjun í fjórðu umferð með góðum sigri og lyfti sér í 50% skor.

í fimmtu umferð fylgdi Helgi þessu eftir sigri í 5. umferð. Alþjóðlegi meistarinn Georg Halvax ákvað að reyna að halda sér fast í ákveðnu „harðlífis-afbrigði“ í drottningarbragði þar sem svartur skiptir upp á drottningum og tekur á sig tvípeð en þarf að þjást töluvert til að ná jafnteflinu. Helgi var ekki á þeim buxunum að leyfa neitt jafntefli og náði að „svíða“ vinninginn af andstæðingi sínum.

Helgi fylgdi þessu eftir með öðrum sigri í röð með svörtu og aftur í Pirc-vörn! Helgi lenti ekki í neinum vandræðum í byrjuninni og tók yfirhöndina í miðtaflinu nokkuð skammlaust. Helgi greinilega kominn í gang og með sjálfstraustið í botni eftir þrjár sigurskákir í röð!

Helgi hefur nú 4 vinninga af 6 mögulegum og má vel við una!

IM-flokkur

Dagur fór vel af stað í IM-flokknum en gaf aðeins eftir í 4. umferð. Dagur hafði að því er virtist góð færi framan af skák en virtist missa þráðinn undir lok tímamarkanna í 40. leik. Spænski FIDE-meistarinn beið átekta og náði að grípa tækifærið eftir tímamörkin.

Aleksandr Domalchuk-Jonasson var hálfum vinningi á eftir Degi og náði honum að vinningum með jafntefli í 4. umferð. Aleksandr hafði lengst af mjög vænlega stöðu og náði að vinna skiptamun í miðtaflinu en það náði ekki að skila sér umfram jafnteflið.

Dagur kom til baka í 5. umferðinni með algjöru vinnslu-jafntefli. Dagur var nánast „í köðlunum“ alla skákina og þurfti mikinn baráttuvilja til að lúta ekki í dúk. Mikið styrkleikamerki að bjarga skítastöðunum!

Aleksandr hafði svart og náði í góðan sigur. Andstæðingur hans réði ekki almennilega við flækjurnar í miðtaflinu og Aleksandr náði í góðan sigur!

Eftir fimm umferðir hefur Aleksandr 3.5 vinning af 5 mögulegum og Dagur er með 3 vinninga af 5 mögulegum.

Taflmennska heldur áfram í dag í báðum flokkum, ein skák tefld á dag.

- Auglýsing -