Lokaumferð í IMf-flokki á alþjóðlegu móti á Spáni, Colonia Sant Jordi, fór fram fyrr í dag. Þeir Aleksandr Domalchuk-Jonasson (2384) og Dagur Ragnarsson (2346) gerðu báðir jafntefli í lokaumferðinni og fara nokkuð sáttir frá borði!
IM-flokkur
Aleksandr Domalchuk-Jonasson hafði svart í lokaumferðinni og skákaði hvítur á b5 í þriðja leik gegn Najdorf. Aleksandr var aldrei í vandræðum og tók jafnteflisboði hvíts í miðtaflinu.
Öllu meiri barátta var í skák Dags Ragnarsson sem hafði hvítt. Dagur stóð aðeins höllum fæti en lagaði stöðuna jafnt og þétt. Jafntefli virtust rökrétt úrslit fljótlega eftir miðtaflið.
Aleksandr lauk leik með 6,5 vinning en Dagur endaði með 5,5 vinning. Aleksandr endaði sem sigurvegari í flokknum og hækkaði um 5 elóstig. Dagur endaði i 4. sæti og hækkaði um 2 elóstig.


















