Ein umferð fór fram í dag á Uppsala Young Masters. Íslensku keppendurnir og TR-ingarnir Adam Omarsson (2001) og Benedikt Þórisson (2000) standa í ströngu á mótinu. Uppskera dagsins var rýr, eitt jafntefli.
Benedikt hafði hvítt gegn FM Adrian Soderstrom (2348). Benedikt fékk fína stöðu og var að setja miklu pressu á þann sænska en missti af vænlegri leið í miðtaflinu og smátt og smátt tók svartur yfirhöndina og sigldi punktinum heim.
Adam hafði líka hvítt og svipað og Benedikt fékk hann betra tafl en náði ekki að nýta sín færi…þó minni hafi þau verið í sniðum en hjá Benedikt. Jafntefli varð að lokum niðurstaðan.
Eftir sjö umferðir hefur Adam 4 vinninga en Benedikt hefur 3 vinninga.
Mótinu lýkur á morgun með tvöfaldri umferð.
- Auglýsing -


















