Heimsmeistaramót Ungmenna í flokkum U18, U16 og U14 fer fram þessa dagana í Florianopolis í Brasilíu. Ísland á einn keppenda á mótinu en Josef Omarsson (2047) lagði í ferðalagið langa til Brasilíu og tekur þátt í U14 flokknum.
Josef er númer 31 í stigaröð af 118 keppendum. Josef vann sigur í fyrstu umferð og mætti næststigahæsta manni mótsins, pólska FIDE meistaranum Patryk Cieslak (2369) sem á eitt stykki Evrópumeistaratitil og áfanga á Reykjavíkurskákmótinu!
Pólverjinn tefldi af dúndurkrafti gegn Josef og nýtti sér öll sín færi með 97% accuracy og 11 acl sem er algjörlega glimrandi taflmennska. Erfitt að eiga við jafn sterka skákmenn ef þeir tefla svona vel!
Josef heldur ótrauður áfram enda langt og strangt mót framundan og óþarfi að dvelja of lengi við tap gegn jafn sterkum skákmanni með svörtu!
Umferðir hefjast að jafnaði um 18:00 að íslenskum tíma og útsendingar 18:15.

















