Dagur Ragnarsson náði góðum úrslitum á Amsterdam Open sem fór fram um helgina. Heilir sex íslenskir skákmenn tóku þátt á mótinu.

Mótið var flokkaskipt í A, B, C og D-flokka eftir stigum. Í C-flokki þar sem skákmenn hafa mest um 1800 elóstig tók Páll Þórsson (1826) þátt og var 3. stigahæsti keppandi flokksins. Í B-flokki voru efstu menn rétt undir 2000 elóstigum og þar tók Davíð Stefánsson (1851) þátt.

Í A-flokki voru svo fjórir íslenskir skákmenn en þar var Dagur Ragnarsson (2346) stigahæstur okkar manna og númer 6 í stigaröðinni, Björn Hólm Birkisson (2202) var númer 24, Oliver Aron Johannesson (2171) var númer 29 og loks Gauti Páll Jónsson (2098) númer 45.

Í C-flokki náði Páll Þórsson sér ekki á flug og endaði með 3 vinninga af 6 mögulegum. Davíð endaði með 2,5 vinning í B-flokki

Í A-flokknum stóð Dagur sig best og endaði með 5 vinninga og var jafn fimm öðrum í efsta sæti mótsins. Gauti Páll fékk 4 vinninga eins og Björn Hólm Birkisson en Oliver Aron Johannesson endaði með 3,5 vinning.

Í lokaumferðinni lagði Dagur Jeroen Van den Berg að velli í lokaumferðinni með svörtu sem tryggði skipt efsta sæti.

Prýðisárangur hjá drengjunum og líklega mót sem Íslendingar eru líklegir til að stunda í framtíðinni!

- Auglýsing -