Íslandsmótið í atskák fer fram laugardaginn 7. desember á Selfossi á Bankanum vinnustofu.

Chess After Dark sjá um mótið – mótið er í boði Mar Seafood restaurant.

Mótið hefst kl 14.00

Umferðarfjöldi: 9

Tímamörk: 10+3

Aðeins er tekið við skráningu á netinu, ekki á staðnum.

Lokað verður fyrir skráningu í mótið föstudaginn 6. desember kl 23.59

Sigurvegari mótsins hlýtur nafnbótina Atskákmeistari Íslands 2024. Núverandi íslandsmeistari er alþjóðlegi meistarinn Hilmir Freyr Heimisson. Efsta konan verður Íslandsmeistari kvenna í atskák.

Í lok móts verður verðlaunaafhending/lokahóf sem fer fram sömuleiðis á Bankanum vinnustofu.

Aðalstyrktaraðili mótsins er Tómas Þóroddsson.

Verðlaun eru eftirfarandi:

  1. 115.000
  2. 60.000
  3. 30.000

Íslandsmeistari kvenna: 20.000

U2000: 18.000

U1600: 18.000

Mótið verður reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

Þátttökugjöld:

Frítt fyrir GM/WGM/IM/WIM

Fullorðnir: 3.500

17 ára og yngri: 2.500

Hlökkum til að sjá ykkur og hvetjum alla til að mæta.

Skráning hér: https://docs.google.com/forms/d/e/1FAIpQLSfSt51OiPwZ5tT2gUb05jlewYF4deMa1N9oSFNcjrdx–Na_Q/viewform

Skráðir keppendur: https://docs.google.com/spreadsheets/d/1MJK78LXJNEKOw8-azvam26a2gkJg7VOHtkmwh5e6_z0/edit?resourcekey=&gid=1061325038#gid=1061325038

- Auglýsing -