Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson varð að lúta í dúk í sjöundu umferð í Masters grúppu London Chess Classic. Keppendur mættu aftur til leiks á Emirates völlinn eftir frídag þar sem leikur Arsenal og Manchester United fór fram. Björn Þorfinnsson vann sína skák í umferðinni, væntanlega kátur eftir för á Arsenal leikinn, en Björn Hólm Birkisson sættist á skiptan hlut í sinni skák.
Íslendingarnir þrír taka þátt í Masters sem er opið mót þar sem 85 skákmenn taka þátt og er Raunak Sadhwani stigahæstur keppenda. Vignir Vatnar er númer 6 í stigaröðinni, Björn Þorfinnsson númer 26 og Björn Hólm Birkisson númer 54.
Fyrir umferðina var Vignir jafn tveimur í efsta sæti á mótinu með 5 vinninga af 6 mögulegum.

Vignir mætti stigahæsta manni flokksins Raunak Sadhwani (2677). Sadhwani þessi var í bronsliði Indlands 2 á Ólympíuskákmótinu í Chennai ásamt þeim Gukesh og Praggnanandhaa.
Vignir glímdi við smá magakveisu og virtist missa aðeins tökin í miðtaflinu og veikti kóngsvænginn sinn. Vignir komst í erfitt biskupaendatafl sem ætti að vera unnið á svart en Indverjinn gaf einn séns í úrvinnslunni. 31…Bd3?? var ekki góður, 31…Kf7 til að valda peðin og svo fara í planið að ráðast á drottningarvæng hvíts var betra.
Vignir lék hér 32.e5?? sem tapar en 32.Kxg4 hefði átt að duga eftir 32…Bb1 33.Bf3 Bxa2 34.Bd1 helst drottningarvængurinn saman og hvítur nær báðum g-peðunum.
Eftir gerðan leik Vignis gerði Sadhwani engin frekari mistök og vann.
Vignir hefur svart í 8. umferð gegn IM Jonah Willow (2454), heimamanni.

Björn Þorfinnsson náði að snúa á Kandídatameistarann Peter Finn í flækjum og nældi sér í vinning. Peð svarts á drottningarvæng virtust ætla að verða stórhættuleg en Björn náði að tefla í kringum þau og ná sér í sín eigin færi.

Björn Hólm Birkisson gerði jafntefli í sinni skák. Hann náði að setja smá pressu á andstæðing sinn í Ítalanum og komst peði yfir í endatafl en virtist samt aldrei hafa nóg til að knésetja andstæðing sinn sem varðist vel og vann fyrir jafnteflinu.
Taflmennskan heldur áfram í áttundu umferð föstudaginn 6. desember og nú er það endaspretturinn!

















