Eftir tvær mjög skemmtilegar skákir róaðist baráttan aðeins í Singapúr. Þeir Dommaraju Gukesh og Heimsmeistarinn Ding Liren skildu jafnir í níundu einvígisskákinni. Gukesh beitti Catalan-byrjun en Ding virðist kominn í hið fínasta formi.

10.Bc3!? var fyrsta augnablikið þar sem Ding fór að nota tíma með svörtu, ekki algeng leið fyrir hvítt. Giri reyndi þetta gegn Hans Niemann fyrir skemmstu en Ding viðurkenndi eftirá að hann hefði ekki þekkt þá skák.

Gukesh fékk að mati Magnus Carlsen smá séns hér

20.Re5 heldur lífi í stöðunni en eftir 20.Db5 þá hreinlega ryksugaðist allt líf af borðinu og jafntefli óumflýjanlegt.

Enn er jafnt nú 4,5-4,5. Ding á eftir fleiri skákir með hvítu og nú telur Magnus Carlsen að Gukesh sé ekki lengur sigurstranglegri í einvíginu!

Blaðamannafundur eftir níundu skákina

Tíunda skákin fer fram á laugardaginn. Skákirnar hefjast klukkan 09:00 á íslenskum tíma. Tefldar eru þrjár skákir og svo er frídagur.

Stúderingar á skák #9:

Skákmenn eru eiginlega „yfirspilltir“ þegar kemur að aðgengi að efni frá heimsklassaskákmönnum. Hér að neðan eru nokkur dæmi um stúderingar á 9. skákinni. Þeir sem hafa verið að gera vídeó-samantektir hingað til eru menn eins og Carlsen, Caruana og Hikaru ásamt Kramnik tjá sig um gang mála!

Magnus og Levy

Hikaru stórmeistari

Daniel King stórmeistari

- Auglýsing -