Aleksandr Domalchuk-Jonasson hefur teflt víða á árinu og nú um helgina tók hann þátt í þýsku deildakeppninni. Aleksandr tefldi tvær skákir við sterka meistara, vann aðra en tapaði hinni. Tefldar voru þriðja og fjórða umferð en fimmta umferðin er í janúar 2025. Aleksandr teflir fyrir FC Bayern Munchen.
Í fyrri skákinni mætti hann þýska alþjóðlega meistaranum Christopher Noe (2510). Aleksandr hafði hvítt og nýtt vel umframpeð til að sigla vinningi heim. Í lokin átti Noe ævintýralega leið til að bjarga jafntefli en missti af því. Skemmtileg skák sem Aleksandr hafði á endanum.
Í seinni skákinni tefldi Aleksandr við franska landsliðsmanninn Maxime Lagarde (2600). Lengi vel virtist Aleksandr vera við það að ná jafntefli en Lagarde náði að knýja fram vinning í endataflinu.

















