Sjötta og næstsíðasta umferð haustmótsins var telfd í gærkveldi, fimmtudag. Úrslit:
Áskell-Hilmir 1-0
Andri-Símon 1/2
Sigurður-Elsa 1-0
Benedikt-Smári 1/2
Fyrstu jafntefli mótsins litu sumsé dagsins ljós í þessari umferð. Hilmir gat ekki mætt í skák sína vegna veikinda. Skák Andra og Símonar var löng og ströng og einkenndist af miklu tímahraki undir lokin. Símon náði snemma undirtökunum með svörtu mönnunum og hélt þeim fram í endatafl. Þá jafnaðist tafli, en á tveimur augnablikum fékk Andri tækifæri til þess að snúa taflinu sér í hag. Hann missti þó af lestinni í miklu tímahraki og jafntefli varð raunin; í lokin stóðu kóngarnir berir eftir!
Elsa jafnaði tafli auðveldlega gegn Sigurði og stóð vel í miðtaflinu. Staðan var þó viðkvæm og eftir mistök af hennar hendi náði sá síðarnefndi að knýja fram sigur. Benedikt náði sínum fyrsta punkti á mótinu gegn Smára. Hann lenti í vörn með hvítu, en náði með snjöllum hætti að skipta upp í hróksendatafl þar sem hann hélt jöfnu með nákvæmri taflmennsku.
Fyrir síðustu umferð er Áskell einn efstur með sex vinninga, fullt hús. Símon kemur á hæla honum með hálfum vinningi minna og mætast þeir í síðustu umferð, sem telfd verður á sunnudag. Þar stýrir Símon hvítu mönnunum. Aðrir eiga ekki möguleika á sigri í mótinu, en Andri Freyr er öruggur í þriðja sæti með fjóra og hálfan vinning. Auk Símonar og Áskels leiða þessi saman hesta sína á sunnudag:
Hilmir og Benedikt
Smári og Sigurður
Elsa og Andri
Sjá nánar á chess-results.

















