Jóhanna, Guðrún, Iðunn, Halla og Ingvar við upphaf ólympíumótsins.

Íslandsmót kvenna í hraðskák, fer fram á föstudaginn, 27. desember í húsnæði Skáksambands Íslands, Faxafeni 12, og hefst kl. 18:00. Skákkonur eru hvattar til að fjölmenna á þetta fjórða Íslandsmót kvenna i hraðskák! Léttar veitingar verða í boði í lok móts, þar sem þáttakendum gefst tækifæri á að eiga saman góða stund.

Tefldar verða sjö umferðir með umhugsunartímanum 4+2.

Verðlaun eru sem hér segir:

  1. 20.000
  2. 12.000
  3.   8.000

Tefld verður aukakeppni um titilinn en önnur sæti gilda oddastig. Verðlaun skiptast eftir Hort-kerfinu og fá að hámarki þrjár skákkonur verðlaun.

Unglingaverðlaun

Bókaverðlaun, eða skákmyndbönd að verðmæti 5.000.

Engin þátttökugjöld.

 

 

- Auglýsing -