Lokakeppnisdagur Heimsmeistaramótsins í atskák fór fram í gær í skugga „Stóra-Gallabuxnamálsin“ og brotthvarfs Magnus Carlsen úr mótinu. Skákmenn um allt land mega eiga von á óþolandi klisjukenndum bröndurum á vinnustöðum næstu daga en jóla- og áramótafrí gætu vonandi bjargað einhverjum frá slíkum örlögum!

Það fór svo að rússneski skákskólinn náði að nýta sér brotthvarf Carlsen en þó er það þannig að Carlsen var dottinn úr keppni og miðað við lokatölur hefði hann orðið að vinna allar síðstu 5 skákir sínar til að eiga möguleika, ekki útilokað en ólíklegt eins og formið hans var fyrstu tvo dagana. Rússarnir semsagt röðuðu sér í efstu sætin en það var hinn ungi Volodar Murzin sem varð hlutskarpastur með 10 vinninga úr 13 skákum. Murzin fór taplaus í gegnum mótið og í raun fór hann taplaus í gegnum sama mót í fyrra en þá varð hann í 5. sæti. Magnaður árangur! Murzin hefur aðeins flogið undir radarnum undanfarin ár en þó er hér á ferð efnilegur skákmaður sem þeir þekkja til sem fylgjast með. T.a.m. hefur undirraður sér hann 14 ára taka þátt í U18 flokki á EM ungmenna til þess að fá erfiðari skákir í stað þess að vinna auðveldan sigur í U14 flokki. Greinilega metnaðarfullur strákur.

Gamla brýnið Alexander Grischuk varð í öðru sæti og á hæla hans kom fýlusveppurinn Ian Nepomniachtchi en þeir fengu báðir 9,5 vinning en Grischuk með betri oddastig.

Íslandsmeistarinn Helgi Áss Grétarsson byrjaði mótið illa en hafði rétt úr kútnum á degi tvö. Á lokadeginum var Helgi greinilega kominn í gang. Hann byrjaði á að fá 2,5 vinning úr 3 skákum gegn stórmeisturunum Dominik Horvarth, Viktor Matviishen og Pablo Zarnicki. Í lokaumferðinni stefndi í að Helgi væri að vinna gegn stórmeistaranum Oliver Barbosa en úrvinnslan klikkaði og loks lék Helgi sig í mát í tvísýnni stöðu. Sigur í þeirri skák hefði fært Helga í 50% á mótinu sem hefð í raun verið magnað eftir erfiða byrjum með 0,5 af 5 á fyrsta degi! Helgi má vel við una og er vonandi kominn í góðan gír fyrir hraðskákina sem hefst á morgun en frídagur er í dag!

Mótið á Chess-Results

HM kvenna í at- og hraðskák fór fram á sama tíma en þar var spennan gríðarleg. Fyrir lokaumferðina voru ekki fleiri né færri en SJÖ skákkonur jafnar með 7,5 vinning í efsta sæti. Humpy Koneru var sú eina úr þeim hópi sem náði sér í vinning í lokaumferðinni og varð því hlutskörpust með 8,5 vinning á undan stórum pakka skákkvenna með 8 vinninga í 2-7. sæti.

Mótið á Chess-Results

Hægt er að nálgast umfjallanir á Take Take Take YouTube rásinni, Chessbase India og fleiri af stærstu skákmiðlum YouTube.

** UPPFÆRT **

Murzin er næstyngsti Heimsmeistarinn í atskák en Nodirbek Abdusattorov er sá yngsti þegar hann vann 17 ára árið 2021 eins og vökulir lesendur Skak.is hafa bent á! Athyglisvert er að bæði Murzin og Abdusattorov höfðu númerið 59 í styrkleikaröð keppenda. Fréttin hefur því verið leiðrétt.

 

- Auglýsing -