Stefán Steingrímur Bergsson tefldi í gær tvöfalda umferð á opnu helgarmóti í Bristol á Englandi. 62 skákmenn taka þátt í þessu 7 umferða opnu móti sem teflt er á fjórum dögum. Tvöfaldir dagar alla daga nema fyrsta daginn!

Í fyrri umferð dagsins, 2. umferð mótsins, tapaði Stefán gegn Englendingnum Andy Hill (1974). Andy teflir í Horfield & Redland klúbbnum sem greinilega leynir á sér og á marga harða skákmenn sem er sýnd veiði en ekki gefin.

Í seinni umferðinni kom Stefán til baka og lagði Soumil Saha (1577) en sá teflir með Bristol & Clifton klúbbnum sem er greinilega ekki jafn harður og Horfield klúbburinn.

Stefán hefur því 2 vinning að loknum 3 umferðum og mætir Tom Shephard (2043) í fyrri umferð dagsins í dag. Shephard er úr í Horfield & Redland klúbbnum og hann ber klárlega að varast!

- Auglýsing -