Vignir Vatnar Stefánsson teflir nú á hinu sögufræga Hastings móti ásamt tveimur félögum sínum úr Breiðablik þeim Benedikt Briem og David Kolka.
109 keppendur eru að þessu sinni á Hastings og er Vignir númer 4 í stigaröðinni.
Í fyrstu umferð mætti Vignir reyndum alþjóðlegum meistara frá Skotlandi, Andrew Muir (2214). Muir tefldi byrjunina af krafti og náði að setja smá pressu á 3…a6 Janowski afbrigði Vignis sem hann einmitt mælir með á VignirVatnar.is.
Vignir náði að stýra taflinu stöðu þar sem aðeins þungir menn voru á borðinu. Staðan í jafnvægi en Vignir með mikið sjálfstraust þessa dagana og ritstjórnin nokkuð viss um að Vignir var staðráðinn í að vinna þessa skák einhvernveginn! Afleikur Muir hjálpaði þó full mikið til!
34.Hxa5?? og hvítur getur gefið eftir 34…De1 með tvöfaldri hótun.
Benedikt fékk erfiða pörun með svörtu gegn Tor Frederik Kaasen (2473). Benedikt lenti peði undir og lenti svo í töpuðu hróksendatafli.
David Kolka vann svo nokkuð auðveldan sigur í sinni skák gegn stigalægri Englending.
Vignir mætir skoskum FIDE-meistara Frederick Waldhausen Gordon (2355) í 2. umferð á morgun og hefur hvítt en tefld verður tvöföld umferð.


















