Alþjóðlegi meistarinn Hilmir Freyr Heimisson hóf í gær leik á opnu hraðmóti í Danmörku, ØBRO x CXU New Years Tournament 2024. Tvær skákir eru tefldar flesta dagana og voru tvær í gær og tvær í dag. Hilmir hefur 3,5 vinning að loknum fjórum umferðum. Hilmir er þriðji í stigaröðinni á þessu 60 manna opna móti.

Hilmir þurfti að hafa nokkuð fyrir sigri gegn heimamanninum Tobias Boje (2027) í fyrstu umferðinni. Hilmir fékk sterkt peðamiðborð sem gerði honum kleyft að sækja að svarta kóngnum. Lokin voru skemmtileg þar sem svartur vakti upp fyrst og hafði tvær drottningar á borðinu þegar hann gafst upp.

Í 2. umferð gaf Oscar Veiergang (2170) full mikinn afslátt af aðgangi á hvítu reitina í eigin herbúðum. Hilmir náði þó ekki að fullnýta það en afleikur í endataflinu auðveldaði Hilmi alla vinningstilburði.

Í þriðju umferð, fyrri umferð dagsins í dag varð Hilmir að sætta sig við skiptan hlut. Andstæðingur hans Ezra Terryn (2236) náði að drepa niður taflið og engir vinningsmöguleikar voru í endataflinu.

Í seinni umferð dagsins tefldi Hilmir franskra vörn í annað skipti á mótinu og gerði vel í að verjast í miðtaflinu. Belginn Maarten De Vleeschauwer (2256) gaf svo færi á taktísku skoti sem Hilmir nýtti sér til að fá vænlegt endatafl.

Síðasti leikur hvíts 26.Dc6? reyndist misráðinn. Hilmir þefaði uppi taktíkina 26…Dxb1! 27.Hxb1 Hd1+ og tók svo á c6. Hilmir náði að vinna endataflið eftir annan fingurbrjót Belgans.

Greiningardeild Skak.is er á því að Hilmir mæti sænska stórmeistaranum Jonny Hector (2443) í fimmtu umferðinn á morgun. Hector er efstur með 4 vinninga, fullt hús, en Hilmir er í öðru sæti með 3,5 vinning.

- Auglýsing -