Margeir varð 65 ára um helgina

Stórmeistarinn Margeir Pétursson tekur þátt á Rilton Cup sem fram fer yfir áramótin 2024/25. Alls taka 115 keppendur þátt á þessu opna móti og er Margeir númer 25 í styrkleikaröðuninni.

Í 2. umferð í gær hafði Margeir svart gegn indverska kvenstórmeistaranum Savitha Baskar (2329) og varð jafntefli niðurstaðan. Til tíðinda bar að stigahæsti maður mótsins, Egyptinn Amin Baseem, varð að lúta í dúk gegn Axel Falkevall á efsta borði.

Svíarnir virðast hafa fjölgað sýningarborðum þannig að skák Margeirs í 3. umferð var í beinni útsendingu. Umferðin er í raun enn í gangi þegar þetta er skrifað en skák Margeirs er lokið.

Margeir tefldi við indverska FIDE meistarann Manoj Jain (2308). Margeir bauð upp á þráleik í miðtaflinu þegar hann hefur skynjað að að svartur stæði síst lakar.

Tefld er ein umferð á dag á Rilton Cup og lýkur mótinu 5. janúar.

- Auglýsing -