Aleksandr Domalchuk-Jonasson (Sasha) teflir nú á opnu móti á Ítalíu 13th Festival Città di Palmanova. Um er að ræða opið mót með 64 keppendum og er okkar maður númer 8 í stigaröðinni.

Í 2. umferð á laugardag mætti hann Pólverjanum Wojciech Reza (2227) sem er FIDE-meistari og hafði Aleksandr svart. Pólverjinn tefldi vel og var með betra tafl en lék því niður í einum leik.

37.Rxf5?? í stað 37.Dg3 er erfitt að útskýra!

Í gær var tvöföld umferð sem gekk ekki vel hjá Sasha. Hann hafði hvítt gegn FIDE meistaranum Fulvio Zamengo (2348) og hafði Ítalinn betur í flókinni skák.

Í fjórðu umferð reyndi Sasha að flækja taflið gegn IM Dusan Lekic (2287) en Svartfellingurinn vildi drepa taflið niður og jafntefli niðurstaðan í 21. leik.

Í fimmtu umferð í dag mætti Sasha IM Jiri Bouska (2267). Okkar maður hafði hvítt en fékk ekki nóg úr London-systeminu til að knýja vinning. Jafntefli niðurstaðan.

Sasha hefur 3 vinninga af 5 mögulegum. Í umferð morgundagsins mætir Aleksandr Ítalanum Leonardo Maglioni (1971), Sasha hefur svart.

- Auglýsing -