Alþjóðlegi meistarinn Hilmir Freyr Heimisson var efstur á opnu hraðmóti í Danmörku, ØBRO x CXU New Years Tournament 2024 fyrir lokaumferðirnar tvær sem fram fóru í dag. Því miður hitti Hilmir á slæma kaflann í dag og tapaði fyrri skákinni en gerði jafntefli í þeirri seinni.

Fyrri skákin var toppuppgjör við Lettann IM Ritvars Reimanis (2339). Hilmir hafi svart og gaf peð til að virkja stöðu sína en virknin fjaraði út og Lettinn náði að láta umframpeðið telja.

Í seinni skákinni mætti Hilmir Færeyingnum IM Johan Arni Nielsen (2339). Segja má að Hilmir hafi svo sannarlega sloppið með skrekkinn. John Arni hafði betur í miðtaflinu og missti af máti í 3 leikjum!

39…Ha1+?? var vísirinn að því að sleppa Hilmi af önglinum. Skákin endaði í þráskák en 39…Hb3+ og svo Dd2+ og Da5# er einfaldlega mát í 3!

Hilmir endaði í 5-7. sæti með 5 vinninga en Jonny Hector varð hlutskarpastur, tapaði aðeins gegn Hilmi en hreinsaði rest. Hilmir hækkar líttillega um 2,5 elóstig fyrir árangurinn.

- Auglýsing -