Björn Hólm - Svona mæta menn á sviðið!

Um helgina fór fram Skákþing Kópavogs. Tefldar voru þrjár atskákir og svo fjórar kappskákir yfir helgina. Eftir mikla baráttu var það Björn Hólm Birkisson sem varð hlutskarpastur, kom í mark með 5,5 vinning af 7. Björn var jafn Halldór B. Halldórssyni að vinningum en hafði betri oddastig og sem meðlimur í Skákdeild Breiðabliks er hann Skákmeistari Kópavogs 2025.

Mótið var æsispennandi og réðust úrslit ekki fyrr en í lokaumferðinni. Halldór var efstur með 5 vinninga en leið fyrir það að hafa þurft að taka eina hjásetu þegar talið var upp úr kössunum en Halldór fór taplaus í gegnum mótið. Sigur Björns Hólm með svörtu gegn Gauta Páli reyndist mikilvæg skák fyrir Björn.

Margir ungir skákmenn stóðu sig vel á mótinu og náðu sér í nokkur elóstig. Næst á dagskrá er svo Skákþing Reykjavíkur!

Mótið á chess-results.

- Auglýsing -