
Um helgina fer fram mót í Færeyjum, Janus Open. Um er að ræða Helgarmót þar hófst á föstudeginum með þremur atskákum. Um helgina verða svo tefldar fjórar kappskákir, tvær á laugardag og tvær á sunnudag. Mótið er óvenjulegt að því leiti að enginn keppandi með yfir 2400 var hreinlega leyfður og ræðst það af því að sökum þess eru tímamörkin 60+30 leyfð sem kappskák-tímamörk.
Íslensku keppendurnir eru 6 á þessu 103 manna opna móti. Stigahæstur Íslendingana er Símon Þórhallsson (2223) en svo koma Björn Hólm Birkisson (2153) og Gauti Páll Jónsson (2152) nánast samstíga en auk þeirra tefla á mótinu landsliðskonan Lenka Ptacnikova (2129), sonur hennar Adam Omarsson (2026) og önnur landsliðskona, Hallgerður Helga Þorsteinsdóttir (1973).
Skemmst er frá því að segja að nokkuð vel gekk í atskákhluta mótsins hjá íslensku keppendunum. Fjórir Íslendingar hafa fullt hús eftir þrjár umferðir en það eru: Símon, Björn Hólm, Gauti Páll og Adam. Hallgerður hefur 2,5 vinning en Lenka hefur 2 vinninga.
Símon náði nokkuð þægilegri sóknarskák í 2. umferð gegn Rogva Morkore. Rogvi drap svolítið eigin dýnamík í stöðunni með 16…c4?
Hérna hefði 17.Rxc4! verið ansi skemmtilegur. Hvítu peðin verða óstöðvandi eftir 17…dxc4 18.Bxc4 Be6 19.d5 o.s.frv. Ekkert var þó að nálgun Símons og vann hann nokkuð örugglega.
Ýmsar leiðir eru til að vinna gegn stigalægri skákmönnum. Björn Hólm valdi að tefla traust með svörtu með semi-Tarrasch gegn öðrum Rogva, Rogva Olsen og treysti svo á betri tækni og peðsvinningur hjálpaði líka. Traust skák hjá Birni.
Adam Omarsson kom sér í góða stöðu með sigri gegn færeyska landsliðsmanninum FM Rogva Egilstoft í þriðju umferð atskákhlutans. Því miður klikkaði útsending skákarinnar.
Gauti komst í 3 af 3 eftir að Heiðríkur fann 9.d3?? í eftirfarandi stöðu.
Heiðríki til varnar gerðist Capablanca sekur um álíka mistök!
Taflið heldur áfram á laugardeginum með tveimur kappskákum og vonandi heldur gott gengi Íslendinganna áfram!













