(Mynd: Thor Kvakkestad)

Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson og alþjóðlegi meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson höfðu báðir svart í þriðju umferð og náði Vignir jafntefli í sinni skák en Aleksandr náði í sigur.

Verkefni umferðarinnar leit svona út:

Vignir var algjörlega í köðlunum lengst af skákar og þurfti að hafa virkilega mikið fyrir hlutunum. Austurrískur andstæðingur hans, efnilegur drengur, missti af náðarhögginu í nokkur skipti og Vignir slapp fyrir horn…var reyndar sjálfur kominn með örlitla sénsa í lokin en jafnteflið góð úrslit eins og skákin þróaðist.

Aleksandr tefldi rúlluskautavaríant í Semi-slavanum þar sem peð svarts verður snemma að drottningu á d1 með skák! Sasha átti einhverja sénsa í flækjum í miðtafli að klára dæmið en lét sér nægja unnið hróksendatafl í lokin.


Verkefni fjórðu umferðar sem er í gangi núna lítur svona út:

Aleksandr mætir þaulreyndum slóvenskum landsliðsmanni en Vignir mætir Maltsevskaya sem teflir fyrir Pólland.

Keppendur á mótinu í ár eru alls 375 og er Vignir númer 69 í stigaröðinni en Aleksandr númer 179. Heimamaðurinn Bogdan-Daniel Deac (2692), sigurvegari á síðasta Reykjavíkurskákmóti, er stigahæstur og eins er Alexey Sarana (2689) alltaf líklegur en fyrir aðeins 2 árum vann hann þrjú mismunandi evrópumót á sama ári þ.e. með mismunandi tímamörkum og bæði einstaklings- og liðakeppni! Tefldar eru 11 umferðir með einum frídegi. Mikið er í húfi en 20 efstu skákmenn mótsins komast á Heimsbikarmótið sem fram fer síðar á þessu ári.

- Auglýsing -