Stórmeistarinn Vignir Vatnar Stefánsson og alþjóðlegi meistarinn Aleksandr Domalchuk-Jonasson hafa ekki enn almennilega bitið frá sér á EM einstaklinga sem fram fer í Rúmeníu. Í dag og í gær komu í hús þrjú jafntefli og eitt tap, sigrarnir láta eitthvað bíða eftir sér enn!
Verkefni fjórðu umferðar í gær var eftirfarandi:

Vignir hafði nokkuð vænlegt tafl og pressaði stíft gegn Aleksöndru Maltsevskayu. Sú pólska náði að verjast mjög vel og Vignir varð að sættast á skiptan hlut í steindauðu drottningarendatafli.
Svipað var upp á teningnum hjá Sasha gegn Matej Sebenik. Sasha pressaði og hafði vænlegt tafl með hvítu en vantaði einhvern slagkraft á ögurstundu eins og Vigni. Traust jafntefli engu að síður.
Í dag voru paranir svona:

Svart í báðum og keppendurnir báðir ungir og efnilegir. Andstæðingur Vignis er í U14 aldursflokki og með fremstu skákmönnum þar, efnilegt eintak! Það koma líka á daginn, jólatrés-hollendingur Vignis misheppnaðist og skiptamunur tapaðist í 19. leik og taflið of erfitt eftir það. Vignir laut í dúk í fyrsta skipti á mótinu.
Sasha tók heltraust jafntefli gegn sínum andstæðingi með svörtu, var aldrei í sjáanlegum vandræðum.
Sasha hefur nú 3 vinninga en Vignir 2,5 vinning. Teflt er á morgun og svo kemur frídagur þar sem okkar menn þurfa að ná sínum vopnum aftur!
Keppendur á mótinu í ár eru alls 375 og er Vignir númer 69 í stigaröðinni en Aleksandr númer 179. Heimamaðurinn Bogdan-Daniel Deac (2692), sigurvegari á síðasta Reykjavíkurskákmóti, er stigahæstur og eins er Alexey Sarana (2689) alltaf líklegur en fyrir aðeins 2 árum vann hann þrjú mismunandi evrópumót á sama ári þ.e. með mismunandi tímamörkum og bæði einstaklings- og liðakeppni! Tefldar eru 11 umferðir með einum frídegi. Mikið er í húfi en 20 efstu skákmenn mótsins komast á Heimsbikarmótið sem fram fer síðar á þessu ári.
















