Keppni heldur áfram í Hotel Stockholm North Young Talents mótunum í Svíþjóð þar sem íslensku vonarstjörnurnar, Vignir Vatnar Stefánsson og Aleksandr Domalchuk-Jónasson, eru mættar til leiks.

Í dag var tvöföld umferð eins og reyndar alla daga og komust okkar menn þokkalega frá þeim.


♟️ Vignir Vatnar – tveir vinningar af fjórum

Stórmeistarinn Vignir var með tvær skákir í dag. Hann gerði stutt jafntefli gegn sænsk/úkraínska alþjóðlega meistaranum Galperin Platon. Það var engum bátum ruggað í þessari skák.

Seinni skákin var mun viðburðaríkari. Þar mætti hann Jonah Willow frá Englandi og skákin bar einkenni baráttu frá upphafi til enda. Eftir spennandi miðtafl lenti Vignir í gríðarlega erfiðri vörn og hafði tapað tafl á kafla. Vignir er hinsvegar þekktur fyrir mikla baráttu undanfarin misseri og náði að klóra sig í jafntefli með mikilli seiglu.

Með þessum úrslitum er Vignir með 2,5 vinninga af 4 mögulegum og enn í baráttunni um efstu sæti mótsins.


🔥 Aleksandr – sóknarsigur í seinni skák

Aleksandr Domalchuk-Jónasson hélt áfram í sínum flokki þar sem 10 keppendur tefla allir við alla.

Í fyrri skákinni dagsins fékk hann jafntefli í skák þar sem hann stóð höllum fæti lengst af með svörtu en eins og svo oft áður náði að verjast og halda skiptum hlut.

Í þeirri síðari kom frábær sóknarsigur gegn Vidar Seiger þar sem hann náði tökum á stöðunni og nýtti yfirburði sína með kraftmiklum hætti. Skemmtileg sóknarþemu í þessari skák sem ungir skákmenn ættu að tileinka sér!

Eftir daginn er Aleksandr því kominn með 2,5 vinninga úr 4 skákum og líkur á fínu móti hjá honum ef fram heldur sem horfir.

Áframhaldandi taflmennska er á morgun þar sem tvöföld umferð fer fram.

  • Skákir á lichess GM | IM
  • Mótið á chess-results GM | IM
- Auglýsing -