Fyrri keppnisdegi Landsmótsins í skólaskák á Ísafirði lauk nú fyrir skömmu.

Í flokki 1.-4. bekkjar er Pétur Úlfar Ernisson einn efstur með sex vinninga, fullt hús. Næst koma Miroslava Skibina og Dawid Berg Charzynski með fimm vinninga.
Samúel Máni Samúelsson er efstur keppenda af landsbyggðinni (utan höfuðborgarsvæðisins) með 3 vinninga.

Pétur Úlfar hefur fullt hús

Í flokki 5.-7. bekkjar er spennan meiri. Þar hafa þrír ungir menn, Haukur Víðis Leósson, Birkir Hallmundarson og Örvar Hólm Brynjarsson, allir fullt hús vinninga.
Heimamaðurinn Karma Halldórsson er efstur keppenda af landsbyggðinni með fimm vinninga.

Haukur, Birkir og Örvar hnífjafnir á toppnum

Í flokki 8.-10. bekkjar er Mikael Bjarki Heiðarsson efstur með fullt hús. Næst kemur Guðrún Fanney Briem, sem hefur staðið sig vel að undanförnu, með fimm vinninga. Markús Orri Óskarsson er þriðji með fjóran og hálfan vinning en hann er jafnframt efstur keppenda af landsbyggðini.

Mikael Bjarki í hörkustuði

Mótshaldið hefur farið vel fram. Milli skáka stunda keppendur fótbolta og njóta sín í veðurblíðunni á Ísafirði.

Keppnin heldur áfram á morgun, sunnudag, kl. 10:00. Þá verða umferðir 7-11 tefldar.

- Auglýsing -