6. maí 2025 – GM og IM-flokkar – Hotel Stockholm North

Það var mikið í húfi á næstsíðasta keppnisdegi í Stokkhólmi, þar sem bæði stórmeistaraflokkur og IM-flokkur börðust í sjöundu og áttundu umferð. Okkar menn héldu sér í toppbaráttu, þó gaman hefði verið að sjá fleiri sigurskákir í dag!

GM-flokkurinn: Vignir nær góðum sigri eftir sveiflur

Í sjöundu umferð mætti Vignir Vatnar Stefánsson kvenstórmeistaranum Maili-Jade Ouellet með hvítu. Vignir fékk betri stöðu úr Katalónsku byrjuninni og virtist ætla að keyra yfir andstæðinginn. En þegar leið á taflið fór hann að glata forskotinu með röð ónákvæmra leikja og mistökum í endataflinu. Úrvinnslan vissuleg hikst en Vignir komst á áfangastað að lokum, sem er fyrir öllu!

Síðar um daginn, í áttundu umferð, tefldi Vignir jafntefli gegn Vitaly Sivuk í stuttri Petrov-varnar skák. Báðir virtust sáttir við litlaust jafntefli – líklega vegna stöðunnar í mótinu og úthaldsins eftir þétt prógramm síðustu daga.

Með 5 vinninga af 8 er Vignir í 2-3. sæti í stórmeistaraflokknum. Sivuk er skrefi á undan og Vignir jafn Galperin.

IM-flokkurinn: Jafnteflisdagur hjá Hilmi og Sasha

Það var mun daufari dagur úrslitalega séð í IM-flokknum

  • Hilmir Freyr Heimisson gerði tvö jafntefli, fyrst gegn félaganum Aleksandr “Sasha” Domalchuk-Jonasson í vináttuviðureign og svo við stigahæsta mann mótsins, Hampus Sorensen. Hilmir sýndi öryggi og taktískan stöðuleika – en engin úrslit sem hrista upp í toppbaráttunni.

  • Sasha var einnig í jafnteflisgírnum – og gerði annað í áttundu umferð gegn Marek Karas. Þar gaf hann frá sér betri stöðu með nokkrum ónákvæmni í uppskiptum og náði ekki að pressa þrátt fyrir sterkari stöðu og þurfi að lokum að verjast peði undir í endatafli

Hilmir hefur 5,5 vinning en Aleksandr 5 vinninga.


Lokadagur Íslendinganna

  • Vignir mætir Rohan Talukdar í næstsíðustu umferð á miðvikudagsmorgni og Hirneise síðar um daginn. Með sigri í báðum getur hann mögulega stolið sigrinum.

  • Hilmir og Sasha eru aðeins á eftir í toppbaráttunni í IM-flokknum þar sem Hampus hefur vinningsforskot. Þeir sækjast vafalítið eftir sigri í lokaumferðinni til að ná sem bestri stigabætingu.


- Auglýsing -