Kristján Örn Elíasson hefur í tvö ár stjórnað, ákaflega vel heppnuðum, vikulegum útvarpsþáttum, á miðvikudögum, á Útvarpi Sögu – sem heita; Við skákborðið.
Í gær mættu tveir frumkvöðlar Helgi Árnason og Tryggvi Leifur í settið í Skipholtið.
Í kynningu um þáttinn segir:
Kristján Örn ræðir við Helga Árnason, formann Skákdeildar Fjölnis og Tryggva Leif Óskarsson, formann Taflfélags Snæfellsbæjar um stórglæsilegt og fjölmennt minningarmót um Gunnar Gunnarsson og Ottó A. Árnason sem haldið var í Félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík um síðustu helgi. Báðir voru þessir frumkvöðlar miklir áhugamenn um skák og merkir menn í sögu Ólafsvíkur.
Eldri þætti má nálgast hér á Spotity.
- Auglýsing -
















