Mikael Bjarki Heiðarsson er efstur á Vormóti Skákskóla Íslands sem fram fer um helgina. Mikael hefur fullt hús vinninga, fimm talsins, að loknum fyrri keppnisdegi. Næstir koma nafnarnir Markús Orri Jóhannsson og Markús Orri Óskarsson með fjóra vinninga.

Mótinu lýkur á morgun, sunnudag. Taflmennska hefst kl. 11:00 og eru efstu borð mótsins í beinni útsendingu.
—
Vormót Skákskóla Íslands fer fram dagana 24.-25. maí. Mótið markar lok vorannar skólans.
Mótið er opið öllum nemendum fæddum 2005 og síðar sem tekið hafa þátt í námskeiðum og starfsemi Skákskólans starfsárið 2024-2025.
Tefldar verða 9 umferðir.
Tímamörk verða 15+5 og skákirnar reiknaðar til atskákstiga.
Dagskrá:
Laugardagur 24. maí
Umferðir 1-5
kl. 11:00-16:00
Sunnudagur 25. maí
Umferðir 6-9
kl. 11:00-15:00
Verðlaun:
1. sæti – Ferðastyrkur að verðmæti 50.000 kr.
2. sæti – Ferðastyrkur að verðmæti 30.000 kr.
3. sæti – Ferðastyrkur að verðmæti 20.000 kr.
Aukaverðlaun í flokki keppenda undir 1800 skákstigum:
1. verðlaun – Ferðastyrkur að verðmæti 20.000 kr.
2. verðlaun – Kennsluefni af Chessable að verðmæti 15.000 kr.
3. verðlaun – Kennsluefni af Chessable að verðmæti 10.000 kr.
Besti árangur stúlkna: Ferðastyrkur að verðmæti 20.000 kr.
Ekki er hægt að vinna til fleiri en einna verðlauna.
Beinar útsendingar
Chess-results















