Alþjóðlegu meistararnir Aleksandr Domalchuk-Jonasson og Hilmir Freyr Heimisson héldu áfram baráttunni á Hotel Stockholm North by First hotels young talent, flokkaskiptu móti í Svíþjóð, Sasha er í GM flokki en Hilmir í IM flokki. Dagurinn í dag gaf ekki vel heilt yfir.
GM-flokkur
Aleksandr er eins og áður sagði í GM-flokki og fékk tvo hvíta menn í dag. Í fyrri skákinni gerði hann jafntefli við sænska stórmeistarann Jung Min Seo. Sasha var kannski aldrei í stórri taphættu þrátt fyrir að vera peði undir í endatafli en hann var heldur ekki líklegur til vinnings. Jafntefli niðurstaðan.
Í seinni skákinni mætti Sasha aftur sænskum stórmeistara, hinum ígul-trausta Jesper Blomqvist. Sasha vanmat skiptamunsfórn svarts í endataflinu og borgaði fulla vexti á því vanmati og varð að lúta í dúk.
Sasha hefur 2 vinninga eftir 6 umferðir og mikilvægt að klára mótið eins vel og hægt er!
IM-flokkur
Hilmir mætti FM Henrik Cernov sem hlýtur að vera skildur hinum Cernovnum sem hann mætti fyrr í mótinu. Henrik er 17 ára og átti lítið erindi í Hilmi í dýnamískri skák. Fínn sigur hjá Hilmi.
Seinni skákin gekk ekki jafn vel. Hilmir hafði aftur hvítt eins og Sasha (greinilega sama númer í töfluröð!) en einhvern veginn virtist Hilmir alltaf í eltingaleik í skákinni og náði ekki í skottið á liðsaflanum sem hann hafði fórnað. Tap gegn IM Isak Storme niðurstaðan.
3,5 vinningur hjá Hilmi eftir 6 umferðir sem er aðeins undir væntingum.
Flokkarnir halda báðir áfram á morgun með tvöfaldri umferð og svo klárast dæmið á föstudag með einni umferð.














