(Mynd: Thor Kvakkestad)

Alþjóðlegi meistarinn og Norðurlandameistari U20 Aleksandr Domalchuk-Jonasson situr nú að tafli í Svíþjóð ásamt alþjóðlega meistaranum Hilmi Frey Heimissyni. Aleksandr teflir í GM-flokki þar sem GM áfangar eru í boði en Hilmir er í IM-flokki og stefnir væntanlega á að hækka þar á stigum. Mótið ber nafnið: Hotel Stockholm North by First hotels young talent.

Tvær umferðir fóru fram í gær og tvær í dag en teflt er stíft, tvær skákir á dag nema síðasta daginn.

GM-flokkur

Aleksandr er eins og áður sagði í GM-flokki og átti prýðilegan dag í gær. Hann lagði norskan skákmann að velli á stöðulegan hátt. Sterkur biskup hvíts og betri kóngsstaða varð að unnu endatafli sem Sasha kláraði.

Seinni skákin í gær var mikil baráttuskák gegn IM Edvin Trost þar sem keppendur skiptust á að eiga góða möguleika en heilt yfir virtist Aleksandr eiga betri möguleika í lokin en Edvin í miðtaflinu. Jafntefli varð að lokum niðurstaðan.

Dagurinn í dag reyndist Sasha erfiður. Fyrst kom tap gegn pólsku landsliðskonunni Oliwiu Kiolbasa. Sasha missti tök á stöðunni í miðtaflinu og í kjölfarið komu of mörg mistök og liðsafli tapaðist.

Seinni skákin í dag var erfið. Stórmeistarinn Frode Urkedal tefldi vel og samspil riddara og drottningar Norðmannsins var svörtu stöðunni ofviða.

Sasha hefur 1,5 vinning eftir 4 umferðir og er restin af mótinu „damage control“ eftir daginn í dag.

 

IM-flokkur

Hilmir hóf fyrsta keppnisdaginn vel eins og Sasha. Fyrst kom jafntefli gegn alþjóðlega meistaranum Vadim Cernov. Hilmir virtist fá nokkuð vænlegt endatafl en herslumuninn virtist vanta til að ýta matinu úr jafntefli í sigur.

Næst kom sigur gegn Vidar Seiger. Sá sænski missti tökin í miðtaflinu og hvíta staðan hrundi taktískt.

Hilmir hóf daginn í dag á tapi með hvítu mönnunum eins og Sasha. Riddari út á kant í byrjuninni virkaði ekki vel og svartur náði yfirhöndinni. Hilmir náði að klóra sig út úr vandræðunum en Litháinn tefldi vel og náði aftur yfirhöndinni og vann í endataflinu.

Hilmir kvittaði snaggarlega fyrir tapið með svörtu en hann náði miklum yfirráðum á ská- og e-línunni og knésetti andstæðing sinn frá Svíþjóð.

2,5 vinningur í hús hjá Hilmi og gæti hann enn blandað sér í baráttu um efstu sætin.

Flokkarnir halda báðir áfram á morgun með tvöfaldri umferð.

- Auglýsing -