Skákskóli Íslands, í samstarfi við skákþjálfarann Gauta Pál Jónsson, stendur fyrir skáknámskeiði á Laugarvatni dagana 19.-20. júlí næstkomandi.
Skáknámskeiðið er ætlað fyrir börn í 6.-10. bekk grunnskóla (2009-2013).
Staðsetning: Menntaskólinn að Laugarvatni.
Námskeiðið fer fram frá klukkan 10:00-12:00 og svo aftur eftir hádegishlé frá 12:30-14:30 báða dagana.
Skráning í námskeiðið miðast við 10-16 þátttakendur. Skráningu verður lokað um leið og 16 hafa skráð sig.
Þátttökugjöld verða kr. 10.000 á mann. Systkinaafsláttur er 20%. Innifalið í þáttttökugjaldinu er námsefni, bæði prentað og á rafrænu formi ásamt ókeypis þátttöku í Suðurlandsmótum Skákskólans í hraðskák.
Nánari upplýsingar veitir Gauti Páll Jónsson.
Netfang:gauti.pall.jonsson@reykjavik.is
Símanúmer: 6919937
Hlekkur á skráningu á námskeiðið