Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson gerði stutt jafntefli í fjórðu umferð í lokuðum GM flokki sem hann tekur þátt í í Ceske Budojovice í Tékklandi. Hannes hefur 1 vinning að loknum 4 umferðum.

Skákin var eins og áður sagði stutt, tefldur var fjögurra riddara afbrigðið í skoska leiknum sem er frekar þurrt. Samið var eftir 14 leiki.

Tefld er ein umferð á dag og heldur mótið áfram á morgun.

- Auglýsing -