Stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson tekur þessa dagana þátt í sterku móti í Austurríki, 38. Salzburger Sonnenterrasse Open, sem fram fer dagana 2.–10. ágúst í St. Veit im Pongau. Eftir sex umferðir situr Guðmundur í 2-7. sæti með 4,5 vinning – og á enn fullt af möguleikum í toppbaráttunni.
Guðmundur hóf mótið með jafntefli við Philipp Scheffknecht (2059) í fyrstu umferð. Guðmundur hafði svart og lenti aldrei í vandræðum í drottningarbragði en vantaði eilítið upp á að geta búið til nægjanleg vandamál fyrir hvítt.
Guðmundur náði síðan fjórum sigrum í röð, gegn CM Andre Kunz (2128), FM Samuel Weber (2239) og IM Ozren Biti (2270) og GM Robert Zelcic (2458).
Skákin gegn Kunz var ekki beint. Guðmundur hafði þetta að segja um skákina í 3. umferð gegn Weber:
„Átti svaka sleggju í 24. leik, eftir Rxf7 gat ég leikið Had8!!“ – Guðmundur
24…Had8!! hefði verið magnaður leikur hér! Guðmundur vann þrátt fyrir það.
Um næstu skák gegn O.Biti hafði Guðmundur þetta að segja:
„Fjórða skákin var ágæt – gegnumbrot, Gummaleg skák…
Takið einnig eftir tilfærslu kóngsins yfir á drottningarvæng áður en Guðmundur hóf aðgerðir í lokin, lærdómsríkt!
Í fimmtu umferð vann hann svo góðan sigur á reyndum stórmeistara, Robert Zelcic (2458), sem sýnir glögglega að Guðmundur er í góðu formi þrátt fyrir að heppnin hafi eilítið verið með honum í þeirri skák.
Toppviðureign og fyrsta tap
Í sjöttu umferð mætti Guðmundur stigahæsta keppanda mótsins, heimamanninum GM Dominik Horvath (2544), sem hefur verið óstöðvandi. Þar beið Guðmundur sinn fyrsta ósigur á mótinu.
Sterkir andstæðingar – spennandi lokasprettur framundan
Guðmundur hefur nú mætt fjórum titilhöfum í röð, þar af þremur stórmeisturum. Næsti andstæðingur hans er hinn reyndi franski stórmeistari Andrei Shchekachev (2468), sem einnig er með 4,5 vinning eftir sex umferðir. Guðmundur fær nú hvítu mennina!
Staðan eftir 6 umferðir (efstu 5):
| Sæti | Nafn | Titill | Þjóðerni | Stig | Vinningar |
|---|---|---|---|---|---|
| 1 | Dominik Horvath | GM | AUT | 2544 | 5,5 |
| 2 | Zoran Jovanovic | GM | CRO | 2501 | 4,5 |
| 3 | Nicola Altini | IM | ITA | 2357 | 4,5 |
| 4 | Andrei Shchekachev | GM | FRA | 2468 | 4,5 |
| 5 | Guðmundur Kjartansson | GM | ISL | 2417 | 4,5 |
- Heimasíða mótsins: https://schachopen.at
- Staða og úrslit: chess-results
















