Hannes Hlífar Stefánsson stórmeistari tekur þessa dagana þátt í alþjóðlega mótinu VIII Internacional “Jugando con las Estrellas” sem fram fer á La Palma á Kanaríeyjum. Hann byrjaði mótið á að tapa illa gegn stigalægri skákmanni sem virtist eiga skák lífs síns að mörgu leiti. Síðan þá virðist Hannes Hafa kveikt á díselvélinni og hefur 4,5 vinning að loknum sex umferðum.
Í fyrstu umferð mætti Hannes heimamanni á fertugsaldri með rétt rúm 1900 skákstig. Venjulega væri þetta frekar auðveld pörun fyrir Hannes og ef til vill varð hann eitthvað værukær þegar heimamaðurinn vippaði út Alekhins-vörn. Hannes líklega hugsað sér að hann myndi máta hann eins og Skagamanninn Einar K. Einarsson sem er einn ötulasti stuðningsmaður Alekhins-varnar hér á landi.
Hannes fékk betra tafl og ætlaði greinilega bara að máta andstæðinginn með h4! Í kjölfarið virtist Hannes hinsvegar þenja sig aðeins of mikið en Spánverjanum til tekna tefldi hann algjörlega eins og herforingi um leið og hann fékk frumkvæðið og flæði miðborðspeða hans leiddi til þess að Hannes laut í dúk í þessari skák.
Í kjölfarið komu tvær léttar paranir gegn stigalægri mönnum sem voru ekki í beinni útsendingu. Hannes vann báðar skákirnar. Í fjórðu umferð mætti Hannes 2000-stiga Ítala. Hér sýndi Hannes góðar hliðar, hélt skákinni í pósanum í caro-kann og yfirspilaði andstæðing sinn stöðulega án teljandi vandræða.
Í fimmtu umferð má segja að Hannes hafi verið búinn að rétta úr kútnum, fékk hvítu mennina og lagði franskan alþjóðlegan meistara að velli. Sá franski tefldi Philidor, líklegast runnið blóðið til skyldunnar, en Hannes mætti þeim franska af krafti. Hannes fórnaði manni og tefldi upp á að vinna manninn til baka með yfirburðatafli.
Sá franski fékk einn séns, Dg5+ í stað Bxe4 en eftir það náði Hannes að vinna manninn til baka, halda stjórn á stöðunni þrátt fyrir berskjaldaðan kóng og vann svo skiptamun.
Í sjöttu umferð gerði Hannes svo jafntefli með hvítu gegn frönskum FIDE meistara. Hannes fékk eitthvað betra tafl í miðtaflinu en náði ekki að búa til vandræði og jafntefli var samið nálægt tímamörkunum.
Í sjöundu umferð á eftir hefur Hannes svart gegn Kazaka, Aituar Zhukenov með 2257 elóstig.













