Undanrásir Íslandsmótsins í netskák

    0
    408
    Ingvar Þór og Björn 'Ivar

    Undanrásir Íslandsmótsins í netskák fara fram miðvikudaginn 27. ágúst á Chess.com og hefstjast kl. 19.30.

    Til að hafa keppnisrétt þurfa viðkomandi að hafa rétt á því að tefla fyrir Íslands hönd og vera meðlimir í TeamIceland á Chess.com.

    Það er nauðsynlegt að skrá rétt nafn í skráningarformið til að eiga möguleika að fá sæti í úrslitunum. Þeir sem hafa þegar keppnisrétt í úrslitunum mega ekki tefla í undanrásunum. 

    Mótið er í umsjón Rafíþróttasambands Íslands í nánu samstarfi við Skáksamband Íslands. Beinar útsendingar verða á Símanum Sport.

    Mótið fer fram með áþekku fyrirkomulagi og á síðasta ári. Undanrásir fara fram miðvikudaginn 27. ágúst og hefjast kl. 19:30 en sjálf 16 manna úrslitin hefjast 7. september.

    Keppendur í 16 manna úrslitum verða valdir á eftirfarandi hátt.

    1. Keppendur sem komust í átta manna úrslita á Síminn Invitational vorið 2025 (varamenn úr undanrásunum núna)
    2. Þrír stigahæstu skákmenn landsins með virk FIDE-hraðskákstig 1.agúst 2025 sem falla ekki undir nr. 1 (varamenn næstu virku menn á hraðskákstigum)
    3. Fjórir efstu í undanrásunum sem fram fara 27. ágúst (varamenn úr undanrásunum)
    4. Efsta kona í undanrásunum sem fram fara 27. ágúst (varamenn næstu konur úr undanrásunum) Ef kona nær að tryggja sig inn í gegnum undanrásirnar (lið 3) bætist þetta sæti við undanrásirnar óháð kyni.

    Í úrslitakeppninni verða tefld sex skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 3½ vinning. Í úrslitum verður 10 skáka einvígi – sá vinnur sem fyrr fær 5½ vinning.

    Gert er ráð fyrir að úrslitin fari fram 30. nóvember. Nánar verður greint frá fyrirkomulagi og dagsetningum úrslitakeppninnar á næstu dögum.

    Verðlaun í aðalkeppninni

    1. 175.000 kr.
    2.   75.000 kr.

    Engin verðlaun, nema keppnisréttur í úrslitakeppninni, eru í undanrásunum.

    Eftirtaldir hafa keppnisrétt á Íslandsmótinu í netskák og hafa þegar fengið boð um þátttöku. Átta fyrstu vegna frammistöðu í fyrra og næstu þrír vegna stöðu sinna hraðskákstigalista FIDE. Að minnsta fimm sæti ráðast svo í undanrásunum.

    1. GM Hannes Hlífar Stefánsson
    2. GM Vignir Vatnar Stefánsson
    3. GM Helgi Ólafsson
    4. IM Aleksandr Domalchuk-Jonasson
    5. GM Bragi Þorfinnsson
    6. FM Ingvar Þór Jóhannesson
    7. IM Hilmir Freyr Heimisson
    8. FM Símon Þórhallsson
    9. GM Helgi Áss Grétarsson
    10. IM Björn Þorfinnsson
    11. IM Jón Viktor Gunnarsson
    12. Undanrásir
    13. Undanrásir
    14. Undanrásir
    15. Undanrásir
    16. Undanrásir (kona)
    - Auglýsing -