Frá blaðamannafundi dagsins. Mynd: Mike Klein/Chess.com

Heimsmeistaraeinvígið í skák hefst í dag í Lundúnum. Um heimsmeistaratitilinn tefla norski heimsmeistarinn Magnus Carlsen (2835) og hinn ítalskættaði Bandaríkjamaður Fabiano Caruana (2832).

Sögulegt einvígi

Það er margt sögulegt við einvígið. Það þarf að fara aftur til þess tíma þegar Kasparov og Karpov voru að keppa um titilinn að tveir stigahæstu skákmenn heims séu að etja kappi um titilinn. Aldrei hafa meðalstigin verið hærri í heimsmeistaraeinvígi. Þetta er í fyrsta skipti síðan 1972 að Bandaríkjamaður teflir um alvöru heimsmeistaratitil (Kamsky tefldi við Karpov FIDE-einvígi á meðan Kasparov var að flestum talinn hinn raunverulegi heimsmeistari).

Dregið var um liti í kvöld og hefur Caruana hvítt í fyrstu skákinni. Án efa mun Fabi reyna að sverfa til stáls með hvítu – vill væntanlega forðast bráðabanann þar sem yfirburðir Magnúsar er mun meiri. Hann vinnur yfirleitt allar úrslitakeppnir.

Fyrirkomulagið

Tefldar eru 12 skákir og sá vinnur sem fyrr fær 6½ vinning. Verði jafnt tefla þeir til úrslita með styttri umhugsunartíma.

Almennt tefla þeir tvær skákir og svo frídagur á milli. Það hægir á tempóinu eftir 10 skákir.

Ávallt hefst taflmennskan kl. 15 á daginn.

Dagsrkánna má finna hér.

Kemur Íslendingur að einvíginu?

Íslands á sinn fulltrúa því Jóhann Hjartarson verður í áfrýjunarnefnd mótsins. Heiður fyrir Jóhann (og líka Ísland) sem vonandi fær þó engin verkefni því það þýðir að einhver hefur kært einhvern sem við viljum síður.

Vonandi getur Jóhann deilt með íslenskum skákáhugamönnum því sem gerist á skákstað. Sjá nánar hér neðar um skákhlaðvarpið.

Með Jóhanni í áfrýjunarnefndinni eru Alexander Beliavsky og Nigel Short.

Hvar er best að fylgjast með einvíginu?

Stutta svarið er að ritstjóri veit það ekki. Það eru ýmsar leiðir færar og það verður bara að koma í ljós hver þeirra sé best. Og sjálfsagt hafa menn á því mismunandi skoðanir þegar á reynir. Hér er bent á nokkrar leiðir.

Einvígið er sýnt beint á NRK2. Hægt er að kaupa áskrift þar bæði í gegnum Símann og Vodafone. Ritstjóri hefur ekki kynnt sér verðskrá áskriftanna.

Opinber heimasíða mótsins er með beinar útsendingar. Áskrift þar kostar $20. Þar er meðal annars Judit Polgar og það sem sú síðar hefur fram yfir aðra og þar geta menn fylgst með skákmönnunum að tafli. Væntanlega er skynsamlegt fyrir skákáhugamenn að leggja út 2.500 kr. fyrir þau gæði auk þess Judit er afar góður skákskýrandi.

Chess24 er ávallt með vandaðar umfjallanir. Þar ráða ríkjum Peter Svidler, Sopiko Guramishvili og Alexander Grischuk. Svidler er einn besti skákskýrandi heims. Óhætt er að mæla með þeim. Alltaf góð gæði til staðar á Chess24.

Chess.com lofar að fylgjast vel með einvíginu og eru komnir í samstarf við Chessbomb. Skýringar þar verða í höndum Danny Rensch og Robert Hess. Sérstakir gestir verðir Nakamura, MVL, Wesley So og Sam Shankland! Ég þekki minna til skákskýringa á Chess.com en Chess24 en þeir hafa greinilega mikið úrvalslið á ferðinni. Sá sem þetta skrifar notar yfirleitt Chess.com sem sýna helstu heimild þegar sagt er frá erlendum skákviðburðum.

Chessbrah mun einnig fylgjast með. Þar verða Kanadamennirnir Aman Hambleton, Eric Hansen og hinn hollenski stórmeistari Robin van Kampen í aðalhlutverkum. Mjög flottar útsendingar og strákarnir fyndnir og skemmtilegir. Kannski pínu unggæðislegir fyrir þá sem komnir eru yfir miðjan aldur.

Örugglega eru einhverjir fleiri mögulegar í gangi og hvet ég skákáhugamenn til að setja í athugasemdir ef þeir vita um aðra áhugaverði útsendingarkosti.

Skemmtilegur blaðamannafundur
Frá blaðmannafundinum

Blaðamannafundur dagsins var hressilegur og báðir fóru á kostum. Nánar má lesa um blaðamannafundinn á Chess.com.

Carlsen svaraði spurninginni hvort hann nyti stuðning kvenna á eftirfarandi hátt:

„I don’t think so. Women hate me; I repel them.“

Blaðamannafundinn má finna í heild sinni hér

Umfjöllun á Skák.is

Skák.is mun að sjálfsögðu fylgjast með einvíginu. Daglegar fréttir og einfaldar skákskýringar. Farið yfir helstu átakapunkta í hverri skák og vísun á dýpri skákskýringar á erlendum miðlum fyrir þá sem það vilja.

Ingvar Þór Jóhannesson, greinarhöfundur og aðrir góðir menn verða reglulega með skákhlaðvarpið (podcast) á meðan einvíginu stendur. Jóhann Hjartarson hefur þegar lofað einhverri aðkomu að hlaðvarpinu frá Lundúnum. Gott að hafa mann á vettvangi! Fyrsta hlaðvarpið um einvígið birtist í gær en þar var líka fjallað um Íslandsmót skákfélaga sem hófst í gærkvöldi.

Hvað segja veðbankar?

Sá sem þetta ritar er ekki mikill sérfræðingur í veðmálum. Mér sýnist samt að veðbankar telji sigurlíkur Norðmannsins tvöfaldar á við Caruana. Menn virðist fá um 140 krónur til baka fyrir hverjar 100 krónur vinni Carlsen en um 280 kr. til baka vinni Caruna. Sjá nánar hér.

Með hverjum halda Íslendingar?

Væntanlega flestir með Carlsen!

Verður heimsmeistaraeinvígið haldið á Íslandi árið 2022?

Vonandi!

Helstu tenglar

Hér verða helstu tenglar. Mjög líklega mun fjölga hér þegar a líður.

- Auglýsing -