Skákdeild Fjölnis er afar óvænt á toppnum eftir þrjár umferðir á Íslandsmóti skákfélaga. Sveitin hefur 20½ af 24 mögulegum. Í þriðju umferð lögðu þeir b-sveit Taflfélags Reykjavíkur örugglega að velli 6½-1½. A-sveit Skákfélagsins Hugins er í öðru sæti 19 vinninga eftir sama sigur á Skákfélagi Akureyrar. Íslandsmeistarar Víkingaklúbbsins er í þriðja sæti með 16½ vinning eftir að hafa haft betur gegn Taflfélagi Garðabæjar með minnsta mun.

A-sveit TR vann Skáksamband Breiðabliks, Bolungarvíkur og Reykjaness með minnsta mun og b-sveit Hugins vann KR 6-2 í botnbaráttuslag.
Þess má geta að þrír þingmenn hafa setið að tafli á Íslandsmóti skákfélaga í dag. Páll Magnússon og Karl Gauti Hjaltason fyrir Taflfélag Vestmannaeyja og Brynjar Níelsson fyrir Taflfélag Reykjavíkur. Um árangur þeirra verður ekki fjallað.
Öll úrslit umferðarinnar má finna á Chess-Results.

2. deild
B-sveit Víkingaklúbbsins er efst með 8 vinninga, Skákdeild Hauka og Hrókar alls fagnaðar eru í 2.-3. sæti með 7 vinninga.
Staðan á Chess-Results.
3. deild
Skákfélag Sauðárkróks, Taflfélag Akraness, b-sveit Taflfélags Garðabæjar og Skákfélag Siglurfjarðar hafa fullt hús stiga.
Staðan á Chess-Results.
4. deild
B-sveit Hróka alls fagnaða, Ungmennasamband Borgarfjarðar, b-sveit Skákdeildar KR og e-sveit TR hafa fullt hús stiga.
Staðan á Chess-Results.














