Markús Orri (Mynd: Thor Kvakkestad)

Fjórða og næstsíðasta umferð úrslitakeppni haustmóts SA var tefld í dag. Úrslit:
Smári-Markús      0-1
Sigþór-Símon      0-1
Áskell-Sigurður   1-0

Markús er því efstur fyrir lokaumferðina með 3,5 vinning, en þeir Símon og Áskell hafa hálfum vinningi minna. Aðrir eiga ekki möguleika á sigri á mótinu. Í lokaumferðinni sem tefld verður á sunnudag eigast við þeir Markús og Áskell, Símon og Smári og Sigurður og Sigþór. Ljóst er að Markús verður meistari með sigri, auk þess sem jafntefli gæti dugað honum, a.m.k. til að deila fyrsta sætinu með Símoni. Áskeli dugar hinsvegar ekkert minna en sigur til að ná efsta sæti, einn eða í félagi við Símon.
Staðan annars hér ásamt öllum úrslitum.

- Auglýsing -