Þremur umferðum er nú lokið á hinu sívinsæla Evrópumeistaramóti taflfélaga (European Chess Club Cup) sem fram fer í Ródos á Grikklandi með metþátttöku. Hér verður gert upp gengi liðanna í dag (3. umferð) og í gær (2. umferð).
Umferð dagsins hófst með mínútu þögn vegna sviplegs fráfalls stórmeistarans vinsæla Daniel Naroditsky sem var aðeins 29 ára gamall. Andrúmsloftið í gær var skiljanlega nokkuð þungt þegar fregnirnar fóru að berast um hótelið.
Taflfélag Reykjavíkur

TR hefur 3 vinninga eftir jafntefli í viðureign dagsins. Í 2. umferð í gær tapaðist viðureignin gegn nokkuð þéttri sveit Werder Bremen.

Aleksandr Domalchuk var sá eini sem vann sína skák, hann hlóð í glanspartý gegn drekanum og mátaði andstæðing sinn. Gummi og Gauti náðu jafntefli með herkjum en aðrir töpuðu.
Í dag var 3-3 jafntefli gegn sveit frá Kósóvó.

Sasha var aftur í stuði og var fljótur að vinna.
…He8+ þvingaði uppgjöf, hvítur tapar drottningunni!
Þröstur náði jafntefli gegn andstæðingi sem tefldi svo hratt að það pirraði eiginlega fleiri en einn liðsmann TR! Þröstur lék Bc4, lokatrikkið í stöðunni
Andstæðingur Þrastar, Asllani hafði 1:28 á klukkunni og bombaði út (eins og í eiginlega öllum leikjum) 1…Hxg1?? og Þröstur skaut inn 2.Bxd5+ og peðsendataflið er jafntefli, báðir vekja upp og hvítur skákar svo af f-peðið. Þröstur ætlaði að gefa eftir 1…Bxc4 sem er kex-unnið. Framkoma Kósóvans í kringum þetta atvik jaðraði við dónaskap, undirritaður átti erfitt með einbeitingu í hamaganginum og til að kóróna kjaftæðið hafnaði hann jafntefli með drottningu á móti drottningu og hamraði út nokkrum tilgangslausum leikjum til viðbótar.
Gummi átti mjög vænlegt tafl en missti þráðinn, var eiginlega með of marga góða möguleika og endaði í vörn í hróksendatafli. Gummi smíðaði fallega vörn.
Hér kom 1.Kh5 að sjálfsögðu og taflinu er borgið! Hvítur drepur b-peðið næst með patti og hrókurinn getur ekki valdað þar sem h-peðið fellur þá.
Ritstjóri náði að bjarga jafntefli í viðureigninni
Eftir að hafa misst niður vænlegt tafl, var komið upp endatafl með mislitum biskupum þar sem svartur reyndi að pressu. Vænkuðust vonir svarts eftir 47.Bc3?? og í kjölfarið kom 47…a3! og svartur stendur til vinnings.
TR mætir Alta Skakklubb á morgun og hefur svart á fyrsta borði.
Skákdeild Breiðabliks
Blikar unnu í gær en urðu að sætta sig við 2-4 tap í dag.

Vignir gerði öruggt jafntefli gegn Viktor Erdos, mjög traustur stórmeistari og fyrrverandi Heimsmeistari unglinga. Erdos er það traustur að á einu EM settu Ungverjar hann á fyrsta borð til að „pulsa“ (gera jafntefli) bara efsta borðið!
Hilmir var ein af hetjum dagsins í gær, hann er vonandi að koma til baka eftir erfitt ár skáklega, hér sést glitta í gamla góða Hilmi, kraftataflmennska!
Arnar Milutin vann líka með svörtu í vandraði og vel útfærðri skák í frönsku vörninni!

Tap í dag hjá Blikum, vinningarnir týndust á neðstu borðunum.
Vignir aftur með jafntefli við stórmeistara en ætlaði sér sigur! Bellachene greinilega skíthræddur, reyndi ítrekað að þráleika en Vignir breytti alltaf útaf. Loks bauð Bellechene snemma eftir 30. leik þegar það mátti en þá voru mislingar á borðinu en svartur samt með betra tafl þrátt fyrir að vera að lenda peði undir.
Blikar mæta Kósóvó-sveitinni sem TR gerði jafntefli við og hafa hvítt á fyrsta borði.
Fjölnir

Fjölnismenn gerðu jafntefli í gær en það var mjög grátlegt.

Jón Trausti var ein af hetjum dagsins með glæsilega skák á 6. borði þar sem hann yfirspilaði andstæðing sinn algjörlega!
Óheppni Fjölnismanna var nánast ólögleg!
Sigurbjörn hafði hafnað þráleik fyrr í skákinni og var að tefla til vinnings, hér lagði andstæðingur hans lævísa gildru í tímahraki.
71…Hf3!? og hvítur hélt að svartur hefði leikið af sér manni og svaraði 72.Kg4 Hf1 73.Hxf4?? en eftir 73…Hxf4 kemur á daginn að a-peðið verður ekki stöðvað, grátleg niðurstaða!
Fjölnismenn mæta Leftos Pyrgos frá Grikklandi í næstu umferð.
Sf. Akureyrar

Akureyri unnu fínan 4,5-1,5 sigur í 2. umferð á White Rose. Þrjú efstu borðin unnu og traust jafntefli á neðri borðunum.

Tap með minnsta mun kom í dag gegn sænskri sveit. Jóhann sýndi góða takta og vann sína aðra skák í röð. Svíarnir voru þéttir á borðum 2-4 og höluðu inn vinninga þar, Bogi Pálsson kýldi aðeins frá sér fyrir hönd Norðanmanna en það dugði ekki til.
Akureyri mætir Master Chess frá Írlandi, svart á fyrsta borði.
Dímon

Dímon lutu í dúk í gær gegn norskri sveit, 1,5-4,5 Ólafur Örn fer vel af stað og gerði jafntefli eftir sigur í fyrstu umferð!

Í dag skrifaði Dímon sig svo í eigin sögubækur.

Jafntefil náðist gegn sveit frá Mónakó, Egill Steinar og Ólafur Örn hetjurnar. Ólafur með 2,5 vinning úr 3 skákum og í dauðafæri að ná CM titlinum!
Dímon mæta Paul Keres #2 frá Hollandi og hafa hvítt á fyrsta.
Ísland í kvennaflokki
Öruggur sigur vannst á ungri stúlknasveit heimamanna í 2. umferð í gær.
Viðureignin í dag hefði átt að vera jafnari á pappírnum.

Skemmst er hinsvegar frá því að segja að það áttu allar slæman dag og viðureignin tapaðist 0-4 þrátt fyrir að við værum stigahærri eða svipuð á öllum borðum.
Athyglisvert endatafl kom upp hjá Bodhana Sivanandan í 2. umferð
Hvítur var +75 fyrr í skákinni (!!) en hér kom afleikur, 70.Kxh5?? er ótrúlegt nokk hræðilegur og staðan nú jafntefli! 70…Kf6 og biskupinn valdar svo bara h6 og hvítur kemst ekkert áfram, ótrúlegt!
Á morgun mætir kvennaliðið She plays to win Lionesses #2, enskri sveit
- Heimasíða mótsins
- Chess-Results (opinn flokkur)
- Chess-Results (kvennaflokkur)
- Beinar útsendingar (opinn flokkur)
- Beinar útsendingar (kvennaflokkur)
- ECU-TV (beinar útsendingar)
Mótið fer fram í opnum flokki (102 sveitir) og kvennaflokki (20 sveitir) og stendur yfir í sjö umferðir frá 19. til 25. október.
Alls eru sex íslensk lið skráð til leiks af 122. Í opnum flokknum eru það:
- Taflfélag Reykjavíkur (nr. 38)
- Skákdeild Breiðabliks (nr. 43)
- Skákdeild Fjölnis (nr. 46)
- Skákfélag Akureyrar (nr. 58)
- Dímon (nr. 99)
Í kvennaflokki er kvennalið sem teflir undir nafni Íslands
- Ísland (15)
Alls tefla 38 skákmenn fyrir Íslands hönd á Ródos og flestir sterkustu skákmenn þjóðarinnar. Aðeins fjórar þjóðir eru fjölmennari en Ísland sem er magnað en það eru: England, Þýskaland, Holland og Grikkland.



















