Stórmeistarinn Jóhann Hjartarson varð hlutskarpastur á Friðriksmóti Landsbankans – Íslandsmótinu í hraðskák – sem fram fór í dag í höfuðstöðvum bankans, Reykjastræti 6. Jóhann var í banastuði og kom í mark með 11,5 vinning úr 13 skákum, ótrúlegur árangur á jöfnu og annars spennandi móti.
Flestir sterkustu skákmenn þjóðarinnar tóku þátt og meðal keppenda voru stórmeistararnir Vignir Vatnar Stefánsson, Helgi Áss Grétarsson, Hannes Hlífar Stefánsson, Helgi Ólafsson, Jóhann Hjartarson, Bragi Þorfinnsson og Þröstur Þórhallsson og Lenka Ptácníková stórmeistari kvenna. Auk þeirra var fjöldi titilhafa og landsliðsmanna. Alls voru keppendur 81 talsins og tefldar voru 13 umferðir með tímamörkunum 3+2.
Margir fóru vel af stað og átta skákmenn höfðu 3 vinninga að loknum þremur umferðum. Þeim fækkaði í þrjá með fullt hús eftir fjórar umferðir en í fjórðu umferðinni lagði Jóhann Vigni að velli í sviptingasamri skák.
Vignir fór í peðaát en lenti í vandræðum með drottningu sína. Jóhann missti af góðum tækifærum til að refsa drottningarflandri Vignis.
Hér hefði 23.g4! verið þræsterkur. Hótunin g5 og Bf4 fangar drottninguna og erfitt að koma henni undan. T.d. 23…g5 24.h4! Bh6 25.e5! og riddari lendir á e4 með tilheyrandi liðstapi á svart. Annar möguleiki kom hér:
Hin and-stöðlegi leikur 25.Bxc6 opnar fyrir 26.Bd4 sem myndi fanga drottninguna.
Vignir slapp með skrekkinn um sinn en loksins þegar hann var mögulega að sleppa fyrir horn kom enn eitt klandrið tengt drottningarflandri.
38…Da7?? og allt í einu er svartur í mátneti, síðasti leikur Jóhann 38.g3!? var lúmskur! 39.Hh2+ og vegna Re7 leiksins er svartur bara mát í nokkrum leikjum.
Bræðurnir Björn og Bragi Þorfinssynir stálu senunni í næstu umferð, Björn lagði Hannes Hlífar og Bragi lagði Jóhann að velli. Björn orðinn einn efstur með fullt hús.
Þeir gerðu innbyrðis jafntefli í næstu umferð en svo mættust Björn og Jóhann Hjartarson í skemmtilegri skák. Jóhann einfaldlega kominn í gang hér og hér var komin byrjun á kafla þar sem Jóhann fékk 7,5 vinning úr 8 síðustu skákunum.
Björn fórnaði manni en fékk hörkubætur.
16…Rxe4! var skemmtilegur og drottningin er friðhelg útaf 17.Bxd8 Rg3+ 18.hxg3 hxg3+ og mátar. Svartur fékk ágætis færi fyrir manninn í kjölfarið en Jóhann var kominn í gang og náði að halda stjórn á stöðunni og hlóð svo í eigið skítatrikk og vann drottninguna af Bjössa.
Eftir áttundu umferð hafði toppurinn þéttst töluvert. Fjórir skákmenn höfðu nú 6,5 vinning, Jóhann, Vignir, Hannes og Þröstur Þórhallsson. Hér tóku þeir Vignir og Jóhann forystuna.
Vignir lagði Þröst að velli með því að fylgja eigin ráðleggingum í Catalan af VignirVatnar.is
Jóhann mátaði Hannes í sikileyjarvörninni.
Báðir héldu þeir áfram með æsispennandi endasprett þeir Jóhann og Vignir…

Vignir kláraði sína skák gegn Jóni Trausti en Jóhann sýndi mikinn ferskleika í sigri sínum með svörtu gegn Hilmi Frey. Jóhann plokkaði léttu menn hvíts af Hilmi hvern á fætur öðrum í lokin.
Björn Þorfinnsson hjálpaði Jóhanni þegar hann hrifsaði jafntefli af Vigni. Jóhann lagði Helga Áss að velli, felldi hann á tíma með gæðataflmennsku.
Björn gekk kannski full langt með 4…b6? til að komast út úr byrjanabókunum en slapp með það þegar Vignir missti af bestu leiðunum. Skákin fjaraði út í lokin en Vignir missti af dauðafæri og mögulega Íslandsmeistaratitlinum á ögurstundu.
Hér drap Vignir á d5, 29.Bxd5? en hefði unnið mann með 29.Hc8! þar sem 29…Hed8 30.Hxd8 Hxd8 31.Hd1 er tjaldið. Dýr yfirsjón hjá Vigni.
Enn ein sigurskákin kom hjá Jóhanni í 12. umferð. Jóhann beitti Aljekín-vörn gegn Degi og náði ótrúlega lengi að tefla í kringum frípeð hvíts á d6-reitnum og loks var riddari svarts orðinn sterkur og Jóhann landaði taktísku skoti. Vignir kláraði sitt með góðri skák gegn Oliver en þurfti að treysta á hjálp í lokaumferðinni.
Vignir náði aftur að klára sitt í lokaumferðinni og náði ótrúlegum seiglusigri gegn Sigurbirni eftir að hafa haft úr litlu að moða lengst af. Jóhann hafði hinsvegar þá þegar tryggt sér titilinn með því að leggja Helga Ólafsson að velli.
Hér sá Jóhann 17.Dg3 og tvöfalda hótunin á g7 og b8 vinnur lið, Helgi lagði niður vopnin.
Lokastaðan:

Glæsilegt mót hjá Jóhanni sem hækkar vel á stigum. Jóhann var í raun fjórum vinningum yfir áætluðum vinningum skv. elóstigum! Alvöru árangur þar á ferð.
Árangur Vignis hefði dugað í flestum árferðum, teflir með rating performance upp á 2600 stig en dugði ekki til að þessu sinni. Hannes og Björn áttu einnig mjög gott mót og mega vel við una. Efstu fimm fengu peningaverðlaun.
- Jóhann Hjartarson 160.000 kr.
- Vignir Vatnar Stefánsson 100.000 kr.
- Hannes Hlífar Stefánsson 80.000 kr
- Björn Þorfinnsson 50.000 kr.
- Þröstur Þórhallsson 30.000 kr.

- Bárður Örn Birkisson – Árangursverðlaun 2000+ (árangur í samanburði við eigin stig) – 25.000 kr.
- Stefán Orri Davíðsson – Árangursverðlaun 1700-1999 (árangur í samanburði við eigin stig) 25.000 kr.

- Tristan Fannar Jónsson – Árangursverðlaun u1700 (árangur í samanburði við eigin stig) – 25.000 kr.

- Jóhanna Björg Jóhannsdóttir – Kvennaverðlaun – 25.000 kr.
FYRRI SIGURVEGARAR
- 2024 – Helgi Áss Grétarsson
- 2023 – Vignir Vatnar Stefánsson
- 2022 – Helgi Áss Grétarsson
- 2021 – Helgi Ólafsson
- 2020 – Hjörvar Steinn Grétarsson
- 2019 – Jón Viktor Gunnarsson
- 2018 – Jóhann Hjartarson
- 2017 – Hannes Hlífar Stefánsson
- 2016 – Jóhann Hjartarson
- 2015 – Þröstur Þórhallsson
- 2014 – Héðinn Steingrímsson
- 2013 – Helgi Ólafsson
- 2012 – Bragi Þorfinnsson, Hjörvar Steinn Grétarsson og Jón Viktor Gunnarsson
- 2011 – Henrik Danielsen
- 2010 – Jón Viktor Gunnarsson og Þröstur Þórhallsson
- 2009 – Héðinn Steingrímsson
- 2008 – Helgi Ólafsson
- 2007 – Héðinn Steingrímsson
- 2006 – Helgi Áss Grétarsson
- 2005 – Jón Viktor Gunnarsson og Arnar E. Gunnarsson
- 2004 – Jóhann Hjartarson og Stefán Kristjánsson















