Innheimta aðildargjalda og valgreiðslna fyrir starfsárið 2025-26 er lokið. Alls voru sendar út 360 kröfur vegna aðildargjalda, og af þeim hafa 220 verið greiddar, eða um 61%.
Heildarupphæð greiddra aðildargjalda nemur 1.320.000 kr. Þar af renna 1.080.000 kr. til Skáksambands Íslands og 240.000 kr. til félaganna.
Að auki bárust valgreiðslur að upphæð 306.000 kr., þar af renna 210.000 kr. til SÍ.
Í samanburði við starfsárið 2024-25 voru sendar út 349 kröfur vegna aðildargjalda, þar af greiddust 230 (um 66%), auk 61 valkrafa. Heildarinnkoman nam þá 1.746.000 kr. (þar af 1.242.000 kr. til SÍ og 504.000 kr. til félaganna). Heildarinnkoman hefur því lækkað um 120.000 kr. á milli ára, þrátt fyrir fleiri sendar kröfur, en innheimtuhlutfallið er svipað og að auki bárust verulegar valgreiðslur.
Nánari upplýsingar um greiðslur hvers félags má sjá í meðfylgjandi töflum.
Greiðslurnar verða inntar af hendi fyrir áramót.
Árgjöld SÍ 2025-26
Valkröfur
Heildargreiðslur til félaganna

















