Seint á árinu 2025 eftir Íslandsmót Skákfélaga hélt stórmeistarinn Guðmundur Kjartansson þjálfaranámskeið sem var sameiginlegt verkefni Evrópska Skáksambandsins (ECU)Skáksambands Íslands og Þjálfaranefndar ECU (ETC).

Guðmundur Kjartansson stórmeistari sá um bróðurpartinn af kennslunni

Námskeiðið var haldið í salakynnum Skákskóla Íslands og í gegnum netið. Námskeiðið var nokkuð vel sótt og fengu 19 einstaklingar afhendar þjálfaragráður að loknu námskeiði og prófum.

Fjölmargir sóttu námskeiðið í gegnum netið.

Eftirtaldir titlar voru veittir að námskeiði loknu:

  • ECU Senior Trainer
    Tveir hlutu þennan titil, stórmeistarnir Jóhann Hjartarsson og Hannes Hlífar Stefánsson.
  • Expert Coach
    Þennan titil hlutu: Hilmir Freyr Heimisson, Óskar Bjarnason, Mikkel Manosri Jacobsen, Áskell Örn Kárason, Daði Ómarsson, Dagur Ragnarsson og Laurence Webb

  • Junior Coach
    Þennan titil hlutu: Jón Úlfur Hafþórsson, Auðunn Haraldsson, Birkir Ísak Jóhannsson, Gauti Páll Jónsson, Torfi Leósson, Magnús Pálmi Örnólfsson, Gunnar Freyr Rúnarsson og Símon Þórhallsson.

- Auglýsing -