Þremur umferðum er lokið á Skákþingi Reykjavíkur en þriðja umferðin var tefld á sunnudeginum í Friðrikssalnum í Faxafeninu. Staðan að loknum þremur umferðum er nokkuð óvænt en sjöundi sitgahæsti skákmaður mótsins, Jóhann Ingvason, er eini skákmaðurinn með fullt hús eftir þrjár umferðir. Jóhann lagði Magnús Pálma Örnólfsson að velli í umferðinni með svörtu, nokkuð óvænt!

Bárður missti af góðu tækifæri

Á efsta borði fékk Bárður Örn Birkisson mörg góð færi gegn Hrafni Loftssyni með svörtu en mistókst að nýta sér sín færi. Hrafn varðist vel og þrátt fyrir fjölmörg dauðafæri bombaði Bárður yfir markið og Hrafn náði góðu jafntefli.

Jóhann Ingvason nýtti sér þetta jafntefli til að ýta sér upp í efsta sætið með góðri skák gegn Magnúsi Pálma Örnólfssyni. Skákin var lengst af í jafnvægi, svartur (Jóhann) með örlítið betri færi á köflum ef eitthvað var. Í drottningarendatafli teygði Magnús sig of langt og Jóhann vann mikilvægt peð. Í úrvinnslunni urðu Jóhanni ekki á nein mistök og nýtti hann sér þessi mistök Magnúsar og sigldi vinningnum heim og greip í kjölfarið efsta sætið!

Skák Ingvars gegn Halldóri var alltaf í jafnvægi.

Þeir Ingvar Wu Skarphéðinsson og Halldór Grétar Einarsson mættust á þriðja borði. Báðir höfðu þeir fullt hús fyrir skákina en segja má að skákin hafi aldrei komist á flug og jafnefli eðlilegt úrslit að leik loknum!

Góð úrslit hjá Hauki gegn goðsögn í íslensku skáklífii, Júlíusi Friðjóns.

Önnur úrslit voru meira og minna eftir bókinni en þó var gaman að sjá hinn efnilega Hauk Víðis Leósson ná í sigur gegn TR-goðsögninni Júliusi Friðjónssyni. Haukur nýtti sín færi vel eftir flókið miðtafl og beti færi á Júlíus framan af skák. Gaman að sjá ungviðið bæta sig!

Að loknum þremur umferðum er Jóhann Ingvason einn keppenda með fullt hús, þrjá vinninga. Á eftir honum kemur mjög þéttur pakki af níu skákmönnum með 2,5 vinning. Þar fyrir neðan hafa 14 skákmenn 2 vinninga og því augljóst að of snemma er að spá í spilin. Einhverjir hafa þurft að taka hjásetur en að sama skapi leiðinlegt að sjá skákmenn draga sig úr mótum.

Skákþingið heldur áfram á sunnudaginn þegar fjórða umferð verður tefld. Pörun kemur eftir hádegi á morgun.

Teflt er á sunnudögum klukkan 13:00 og miðvikudögum klukkan 18:30.

Dagskrá:

  1. umferð miðvikudag 7. jan 18:30
  2. umferð sunnudag 11. jan 13:00
  3. umferð miðvikudag 14. jan 18:30
  4. umferð sunnudag 18. jan 13:00
  5. umferð miðvikudag 21. jan kl. 18:30
  6. umferð sunnudag 25. jan 13:00
  7. umferð miðvikudag 28. jan 18:30
  8. umferð sunnudag 1. feb 13:00
  9. umferð miðvikudag 4. feb 18:30

Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.

Tímamörk:

90 mín á 40 leiki, síðan 15 mín, auk 30 sek eftir hvern leik alla skákina.

Skákstjórn:

Daði Ómarsson og Jon Olav Fivelstad

Aðalverðlaun

  • 1. sæti kr. 110.000
  • 2. sæti kr. 55.000
  • 3. sæti kr. 35.000

Aukaverðlaun

Aukaverðlaun eru þannig að frá og með 11. skákmanni miðað við upphafsröð í mótinu (strarting rank) verður skákmönnum, þaðan og niður, skipt í fjórar jafnstórar stigagrúbbur. Sem dæmi: Taki 50 manns þátt í mótinu þá væri þetta svona:

Efstu 10 keppa ekki um aukaverðlan, heldur aðalverðlaun.

Keppendur númer 11.-20. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun A.

Keppendur númer 21.-30. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun B.

Keppendur númer 31.-40. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun C.

Keppendur númer 41.-50. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun D.

Sá sem endar mótið efstur í A grúbbu vinnur því aukaverðlaun A, og svo framvegis.

Aukverðlaun í öllum flokkunum fjórum eru 12.500 krónur.

Oddastig (tiebreaks):

1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger

Þátttökugjöld: 

kr. 8.000 fyrir 18 ára og eldri.

kr. 4.000 fyrir 17 ára og yngri.

Frítt fyrir Stórmeistara

Skráningarform:

Skráningaform: U-17

Skráðir keppendur:

Skrá yfirsetu:

Keppt er um titilinn Skákmeistari Reykjavíkur 2026 og hlýtur sá keppandi sem verður efstur þeirra sem eiga lögheimili í Reykjavík, eða eru félagsmenn í reykvísku skákfélagi, titilinn og farandbikar til varðveislu í eitt ár. Núverandi Skákmeistari Reykjavíkur er Oliver Aron Jóhannesson.

Verði keppendur jafnir að vinningum í þremur efstu sætunum, verður verðlaunum skipt (Hort-kerfi), en oddastig (tiebreaks) látin skera úr um lokaröð. Aukaverðlaun ganga óskipt til þess sem hefur flest oddastig.

Skákþing Reykjavíkur er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

- Auglýsing -