Carlsen og Caruna við upphaf fimmtu skákarinnar.

Jafntefli urðu úrslit elleftu og næstsiðustu skákar heimsmeistaraeinvígis Magnúsar Carlsen (2835) og Fabiano Caruana (2832). Staðan er því 5½-5½ fyrir lokaskákina á mánudaginn. Skák dagsins var litlaus – sennilega litlausasta hingað til.

Athyglisverðasta augnablik skákarinn var ef til vill þegar Sergey Karjakin lék fyrsta leiknum í skákinni fyrir hönd Carlsen og valdi 1.b4 hina svokölluðu Orangutan byrjun!

Carlsen tók leikinn að sjálfsögðu til baka líkt og Caruana þurfti að gera eftir mistök Woody Harrelson í fyrstu skákinni. Kóngspeðið fór áfram um tvo reiti, 1.e4 og heimsmeistarinn leyfði áskorandanum loks að sýna hvað hann hafði handraðinum í Petroff. Upp kom afbrigði með Rd7-f6 tilfæringu hjá Caruana sem er tiltölulega ný hugmynd í slíkum stöðum. Hou Yifan hafði leikið þessu gegn Caruana í Wijk aan Zee fyrr á árinu og heillað Caruana af þessari hugmynd.

Skjáskotið fræga úr Caruana myndbandinu

Að þetta afbrigði skildi koma upp var mjög athyglisvert, sérstaklega í ljósi þess að þetta afbrigði var sjáanlegt í „lekamálinu“ svokallaða þar sem undirbúningur Caruna hafði lekið í myndbandi sem átti að sýna undirbúning hans fyrir einvígið. Skjáskot af tölvu Caruana sýndi greinilega afbrigði sem líklegt var að hann myndi tefla í einvíginu og þar á meðal „Petroff with Nd7-f6 idea“.  Maður hefði því haldið að Carlsen myndi hafa eitthvað fram að færa gegn þessari hugmynd!

Magnús komst hinsvegar ekkert áleiðis og var ákaflega litlaust jafntelfi samið eftir 55 leiki en úrslitin voru þá fyrir löngu orðin ljós. Svona u.þ.b. 35- 40 leikjum fyrr.

9…Rf6 var leikur Caruana. Sá leikur er miklu óalgengarinn en 9….Re5. Magnús lék 10. Bd3 og eftir 10…c5 hugsaði hann sig lengi um áður en hann lék 11. Hhe1. Framhaldið varð 11…Be6 12. Kb1 Da5 13. c4 Dxd2 14. Bxd2. Eftir það gerðist einfaldlega ekkert markvert í skákinni sem er sennilega sú leiðinlegasta til þessa.

Leyfum Magnúsi að eiga orðið

https://platform.twitter.com/widgets.js

Grein Chess.com með skýringum Sam Shankland verður að finna hér.

Ingvar Þór Jóhannesson fer yfir skákina á Youtube.

Tólfta og síðasta skákin verður tefld á mánudaginn og þá verður ritstjóri Skák.is mættur til Lundúnar á ásamt stórmeistaranum Þresti Þórhallssyni.

Hvar er best að fylgjast með einvíginu:

- Auglýsing -