Stórmeistarinn Hannes Hlífar Stefánsson lauk í gær leik í lokuðum stórmeistaraflokki í Marienbad í Tékklandi. Hannes var þriðji stigahæsti keppandinn í flokknum og einn þriggja stórmeistara. Ungu titilhafarnir eru svo að reyna að ná sér í stórmeistara áfanga á slíku móti og geta þau því verið erfið. Hannes lauk leik með 4 vinninga af 9, undir pari, ekki gott en ekki slæmt.

Hannes byrjaði á traustu jafntefli gegn úkraínsku vélinni Anton Korobov og vann svo fína skák í þriðju umferð. Í kjölfarið komu tvö töp og restin af skákunum enduðu með jafntefli.

Hér er sigurskák Hannesar, smekklegt stöðulegt þema. Hannes fórnar peði til að loka biskup svarts inni.

Greinarhöfundur fjallaði um þetta mynstur fyrir einhverjum árum á JúTjúb rás sinni:

Anton Korobov vann flokkinn mjög auðveldlega með 7,5 vinning af 9 mögulegum. Hannes endaði með 4 vinninga í 7. sæti og tapar 10 elóstigum á mótinu.

Mótið á chess-results

- Auglýsing -