Alþjóðlegi meistarinn Dagur Ragnarsson tók í gær forystu á Skákþingi Reykjavíkur þegar hann lagði FIDE meistarann Halldór Grétar Einarsson að velli í toppuppgjöri. Dagur hefur nú vinningsforskot á sex skákmenn.

Á efsta borði hafði Halldór hvítt gegn Degi og upp kom drottningarlaust miðtafl. Staðan líklegast orðin örlítið betri á Dag þegar Halldór gaf peð til að reyna að virkja stöðu sína. Dagur hélt vel á peðinu og náði að stýra því í endatafl þar sem hann kláraði dæmið.

Jóhann Ingvason gerði sitt þriðja jafntefli í röð eftir að hafa unnið fyrstu þrjár skákirnar á mótinu. Jóhann slapp líklega með skrekkinn þar sem Guðmundur Halldórsson átti vænlegt endatafl

Júlíus Friðjónsson blandaði sér í toppbaráttuna með því að leggja Jóhann Ragnarsson að velli í sannkölluðum refaslag. Vel útfærð skák hjá Júlíusi sem alltaf hefur verið sterkur í „pósanum“.

Benedikt Briem hélt áfram endurkomu sinni og vann sterkan sigur gegn Hrafni Loftssyni í virkilega vel tefldri sóknarskák.

Bárður vann góðan tæknisigur gegn Markúsi Orri, skemmtilegt peðsendatafl.

Dagur hefur 5,5 vinning en 4,5 vinning hafa þeir Jóhann Ingvason, Benedikt, Halldór Grétar, Guðmundur Halldórsson, Júlíus Friðjónsson og Bárður Örn.

Skákþingið heldur áfram á miðvikudaginn þegar sjöunda umferð verður tefld. Dagur hefur nú hvítt og mætir Jóhanni Ingvasyni. Benedikt og Halldór mætast í Blikaslag, margar skemmtilegar skákir.

MYNDIR

_D0A1992

Almennt um mótið

Teflt er á sunnudögum klukkan 13:00 og miðvikudögum klukkan 18:30.

Dagskrá:

  1. umferð miðvikudag 7. jan 18:30
  2. umferð sunnudag 11. jan 13:00
  3. umferð miðvikudag 14. jan 18:30
  4. umferð sunnudag 18. jan 13:00
  5. umferð miðvikudag 21. jan kl. 18:30
  6. umferð sunnudag 25. jan 13:00
  7. umferð miðvikudag 28. jan 18:30
  8. umferð sunnudag 1. feb 13:00
  9. umferð miðvikudag 4. feb 18:30

Sjálfkrafa tap dæmist á keppanda sem mætir á skákstað meira en 30 mínútum eftir upphaf umferðar.

Tímamörk:

90 mín á 40 leiki, síðan 15 mín, auk 30 sek eftir hvern leik alla skákina.

Skákstjórn:

Daði Ómarsson og Jon Olav Fivelstad

Aðalverðlaun

  • 1. sæti kr. 110.000
  • 2. sæti kr. 55.000
  • 3. sæti kr. 35.000

Aukaverðlaun

Aukaverðlaun eru þannig að frá og með 11. skákmanni miðað við upphafsröð í mótinu (strarting rank) verður skákmönnum, þaðan og niður, skipt í fjórar jafnstórar stigagrúbbur. Sem dæmi: Taki 50 manns þátt í mótinu þá væri þetta svona:

Efstu 10 keppa ekki um aukaverðlan, heldur aðalverðlaun.

Keppendur númer 11.-20. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun A.

Keppendur númer 21.-30. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun B.

Keppendur númer 31.-40. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun C.

Keppendur númer 41.-50. í upphafsröð keppa um aukaverðlaun D.

Sá sem endar mótið efstur í A grúbbu vinnur því aukaverðlaun A, og svo framvegis.

Aukverðlaun í öllum flokkunum fjórum eru 12.500 krónur.

Oddastig (tiebreaks):

1. Fleiri tefldar skákir 2. Buchholz (-1) 3. Buchholz 4. Innbyrðis úrslit 5. Sonneborn-Berger

Þátttökugjöld: 

kr. 8.000 fyrir 18 ára og eldri.

kr. 4.000 fyrir 17 ára og yngri.

Frítt fyrir Stórmeistara

Skráningarform:

Skráningaform: U-17

Skráðir keppendur:

Skrá yfirsetu:

Keppt er um titilinn Skákmeistari Reykjavíkur 2026 og hlýtur sá keppandi sem verður efstur þeirra sem eiga lögheimili í Reykjavík, eða eru félagsmenn í reykvísku skákfélagi, titilinn og farandbikar til varðveislu í eitt ár. Núverandi Skákmeistari Reykjavíkur er Oliver Aron Jóhannesson.

Verði keppendur jafnir að vinningum í þremur efstu sætunum, verður verðlaunum skipt (Hort-kerfi), en oddastig (tiebreaks) látin skera úr um lokaröð. Aukaverðlaun ganga óskipt til þess sem hefur flest oddastig.

Skákþing Reykjavíkur er reiknað til alþjóðlegra skákstiga.

- Auglýsing -