SA-maðurinn Símon Þórhallsson að tafli á EM taflfélaga sem lánsmaður með Víkingaklúbbnum Mynd: Heimasíða EM taflfélaga.

Forystusauðinrnir Símon og Smári mætturt í þessari umferð. Sá síðarnefndi fékk snemma mjög óvirka stöðu og þá dugði ekki að halda sér fast; eitthvað varð að láta undan þegar hvítreitabiskup svarts var nánast grafinn lifandi af eigin peðum. Annars einkenndi það þessa umferð að kynslóðirnar héldust aðskildar; börnin tefldu við önnur börn en stálpaðir unglingar og fullorðnir tefldu innbyrðis. Barnamegin kom fátt á óvart; mesta athygli vakti öruggur sigur Hörpu gegn Nökkva sem hefur teflt traust á þessu móti.
Mennskælingarnir Tobias og Baldur fengu frekar auðveld jafntefli við sér reyndari menn en Markús kollega þeirra lenti í svínslega flókinni stöðubaráttu gegn FM Þorgeirssyni þar sem þeim síðarnefnda tókst að véla fram unnið hróksendatafl eftir dúk og disk. Þetta var langlengsta skák umferðarinnar.

Úrslitin:

1 2 FM Thorhallsson, Simon 2192 3 1 – 0 3 Olafsson, Smari 1874 5
2 1 FM Thorgeirsson, Jon Kristinn 2270 1 – 0 2 Oskarsson, Markus Orri 1983 4
3 3 IM Karason, Askell O 2103 2 1 – 0 2 Eiriksson, Sigurdur 1779 7
4 10 Matharel, Tobias 1759 ½ – ½ Steingrimsson, Karl Egill 1768 8
5 9 Eymundsson, Eymundur 1764 ½ – ½ Thoroddsen, Baldur 1597 12
6 13 Karlsdottir, Harpa Hrafney 1562 1 1 – 0 Valsson, Nokkvi Mar 1561 15
7 14 Kramarenko, Viacheslav 1561 1 1 – 0 1 Wielgus, Dominik W 0 21
8 19 Lanckman, Galaad 0 1 0 – 1 1 Asgrimsson, Valur Darri 1488 17
9 20 Warneke, Rurik Kjartan 0 0 0 – 1 0 Bjorgvinsson, Bjorgvin Elvar 0 22
10 6 Isleifsson, Runar 1842 ½ not paired
11 11 Stefansson, Benedikt 1759 2 ½ not paired
12 16 Sigurgeirsson, Sigthor Arni 1546 1 ½ not paired
13 18 Bernhardsson, Kristian Mar 0 1 ½ not paired

Símon er því efstur með fjóra vinninga eins og áður sagði; Jón Kristinn hefur hálfum minna og Áskell þrjá. Svo koma nokkuð margir með tvo vinninga. Þetta ásamt röðun í fimmtu umferð (kl. 18.30 á fimmtudag) má finna á chess-results.

- Auglýsing -