
Forystusauðinrnir Símon og Smári mætturt í þessari umferð. Sá síðarnefndi fékk snemma mjög óvirka stöðu og þá dugði ekki að halda sér fast; eitthvað varð að láta undan þegar hvítreitabiskup svarts var nánast grafinn lifandi af eigin peðum. Annars einkenndi það þessa umferð að kynslóðirnar héldust aðskildar; börnin tefldu við önnur börn en stálpaðir unglingar og fullorðnir tefldu innbyrðis. Barnamegin kom fátt á óvart; mesta athygli vakti öruggur sigur Hörpu gegn Nökkva sem hefur teflt traust á þessu móti.
Mennskælingarnir Tobias og Baldur fengu frekar auðveld jafntefli við sér reyndari menn en Markús kollega þeirra lenti í svínslega flókinni stöðubaráttu gegn FM Þorgeirssyni þar sem þeim síðarnefnda tókst að véla fram unnið hróksendatafl eftir dúk og disk. Þetta var langlengsta skák umferðarinnar.
Úrslitin:
| 1 | 2 | FM | Thorhallsson, Simon | 2192 | 3 | 1 – 0 | 3 | Olafsson, Smari | 1874 | 5 | |
| 2 | 1 | FM | Thorgeirsson, Jon Kristinn | 2270 | 2½ | 1 – 0 | 2 | Oskarsson, Markus Orri | 1983 | 4 | |
| 3 | 3 | IM | Karason, Askell O | 2103 | 2 | 1 – 0 | 2 | Eiriksson, Sigurdur | 1779 | 7 | |
| 4 | 10 | Matharel, Tobias | 1759 | 1½ | ½ – ½ | 1½ | Steingrimsson, Karl Egill | 1768 | 8 | ||
| 5 | 9 | Eymundsson, Eymundur | 1764 | 1½ | ½ – ½ | 1½ | Thoroddsen, Baldur | 1597 | 12 | ||
| 6 | 13 | Karlsdottir, Harpa Hrafney | 1562 | 1 | 1 – 0 | 1½ | Valsson, Nokkvi Mar | 1561 | 15 | ||
| 7 | 14 | Kramarenko, Viacheslav | 1561 | 1 | 1 – 0 | 1 | Wielgus, Dominik W | 0 | 21 | ||
| 8 | 19 | Lanckman, Galaad | 0 | 1 | 0 – 1 | 1 | Asgrimsson, Valur Darri | 1488 | 17 | ||
| 9 | 20 | Warneke, Rurik Kjartan | 0 | 0 | 0 – 1 | 0 | Bjorgvinsson, Bjorgvin Elvar | 0 | 22 | ||
| 10 | 6 | Isleifsson, Runar | 1842 | 1½ | ½ | not paired | |||||
| 11 | 11 | Stefansson, Benedikt | 1759 | 2 | ½ | not paired | |||||
| 12 | 16 | Sigurgeirsson, Sigthor Arni | 1546 | 1 | ½ | not paired | |||||
| 13 | 18 | Bernhardsson, Kristian Mar | 0 | 1 | ½ | not paired |
Símon er því efstur með fjóra vinninga eins og áður sagði; Jón Kristinn hefur hálfum minna og Áskell þrjá. Svo koma nokkuð margir með tvo vinninga. Þetta ásamt röðun í fimmtu umferð (kl. 18.30 á fimmtudag) má finna á chess-results.













